Spurningakassinn
◼ Hvenær er rétt að hætta biblíunámskeiði?
Ef biblíunemandi hættir að taka framförum gætirðu þurft á kurteisan hátt að hætta biblíunámskeiðinu. (Matt. 10:11) Spyrðu sjálfan þig: Virðir nemandinn umsaminn tíma? Undirbýr hann sig í bókinni fyrirfram? Hefur hann mætt á einhverjar samkomur? Segir hann öðrum frá því sem hann er að læra? Gerir hann breytingar á lífi sínu í samræmi við meginreglur Biblíunnar? Þú þarft að sjálfsögðu að sýna sveigjanleika með tilliti til aldurs og getu og hafa í huga að það taka ekki allir framförum á sama hraða. Hafðu líka í huga ef þú hættir biblíunámskeiðinu að halda möguleikanum opnum að byrja aftur seinna. – 1. Tím. 2:4.