Gefið biblíunemendum af sjálfum ykkur
1. Hvernig getum við hjálpað biblíunemanda?
1 Til að hjálpa biblíunemanda að tileinka sér sannleikann er ekki nóg að halda bara biblíunámskeið. Páll postuli líkti sambandi sínu við þá sem hann kenndi við móður sem hlúir að börnum sínum. Við gefum einnig með ánægju af sjálfum okkur í þeim tilgangi að hjálpa biblíunemendum okkar að taka andlegum framförum. — 1. Þess. 2:7-9.
2. Hvers vegna ættum við að sýna persónulegan áhuga og hvernig getum við gert það?
2 Sýndu persónulegan áhuga: Þegar biblíunemandi fer að breyta eftir því sem hann lærir mun samviskan knýja hann til að takmarka náin samskipti við þá sem fylgja ekki meginreglum Biblíunnar. (1. Pét. 4:4) Fjölskylda hans gæti jafnvel afneitað honum. (Matt. 10:34-36) Við getum átt þátt í að fylla hið tilfinningalega tómarúm með því að sýna nemandanum umhyggju og persónulegan áhuga. Reyndur trúboði leggur þetta til: „Ekki rjúka út um leið og námsstundin er búin. Staldraðu við og spjallaðu smástund ef það á við.“ Vertu vakandi fyrir að bjóða fram hjálp þína. Gætirðu til dæmis hringt eða litið við þegar nemandinn er veikur? Geturðu setið hjá honum á samkomum og hjálpað til með börnin ef við á?
3. Hvernig getum við hjálpað biblíunemanda að fá uppörvun frá söfnuðinum?
3 Aðrir í söfnuðinum geta verið til hjálpar: Ef þú ert í starfinu nálægt heimili biblíunemanda þíns gætirðu þá komið við hjá honum og kynnt hann stuttlega fyrir starfsfélaga þínum? Þegar það á við skaltu bjóða mismunandi boðberum, þar á meðal öldungum, að vera með þegar þú heldur námskeiðið. Fljótlega eftir að námskeiðið kemst í gang skaltu hvetja biblíunemandann til að sækja samkomur í ríkissalnum. Það gefur honum tækifæri til að eiga uppbyggilegan félagsskap við bræður og systur í söfnuðinum sem verða kannski andleg fjölskylda hans. — Mark. 10:29, 30; Hebr. 10:24, 25.
4. Hvaða umbun getum við hlotið ef við leggjum okkur fram við að sinna biblíunemendum okkar?
4 Foreldri, sem er óþreytandi við að hjálpa börnum sínum að taka andlegum framförum, verður himinlifandi þegar þau taka afstöðu með Jehóva og hlýða sannleikanum. (3. Jóh. 4) Við getum upplifað álíka gleði þegar við gefum af sjálfum okkur í þeim tilgangi að hjálpa biblíunemendum okkar.