Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 10. ágúst
VIKAN SEM HEFST 10. ÁGÚST
Söngur 61 og bæn
Safnaðarbiblíunám:
cl kafli 28 gr. 18-21, rammi á bls. 289 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 1. Konungabók 21-22 (8 mín.)
Nr. 1: 1. Konungabók 22:13-23 (3 mín. eða skemur)
Nr. 2: Hvernig geturðu eignast samband við Guð? – igw bls. 28 gr. 1-4 (5 mín.)
Nr. 3: Dalíla – fégræðgi getur leitt til sviksemi – w12 15.4. bls. 8 gr. 1-7 (5 mín.)
Þjónustusamkoma:
Þema mánaðarins: Ég og mínir ættmenn munum þjóna Jehóva – Jós. 24:15.
10 mín.: Ég og mínir ættmenn munum þjóna Jehóva. Ræða byggð á þema mánaðarins. Lestu og útskýrðu 5. Mósebók 6:6, 7; Jósúabók 24:15 og Orðskviðina 22:6. Leggðu áherslu á að eiginmaðurinn verði að taka forystuna í trúnni með eiginkonu sinni og börnum. Beindu athygli áheyrenda að mismunandi verkfærum sem trúi þjónninn sér fjölskyldum fyrir. Minnstu á nokkur atriði á þjónustusamkomu í mánuðinum og hvernig þau tengjast þemanu.
20 mín.: „Tökum framförum í boðunarstarfinu – þjálfum nýja.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Spyrðu foreldra hvernig meginatriði greinarinnar eiga við þegar þeir hjálpa börnum sínum að taka framförum í trúnni. Hafðu sýnikennslu þar sem faðir undirbýr kynningu fyrir boðunarstarfið með ungum syni sínum eða dóttur.
Söngur 93 og bæn