Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 15. júní
VIKAN SEM HEFST 15. JÚNÍ
Söngur 77 og bæn
Safnaðarbiblíunám:
cl kafli 26 gr. 1-9 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 2. Samúelsbók 22-24 (8 mín.)
Nr. 1: 2. Samúelsbók 22:21-32 (3 mín. eða skemur)
Nr. 2: Kain – viðbrögð okkar við leiðbeiningum segja mikið um okkur – w13 1.1. bls. 15 (5 mín.)
Nr. 3: Kærleikur og hlýðni veitir hamingju – igw bls. 22 gr. 4-6 (5 mín.)
Þjónustusamkoma
Þema mánaðarins: „Minnstu fyrri tíða.“ – 5. Mósebók 32:7.
12 mín.: Hver er uppáhaldsbiblíupersónan þín? Viðtal og ræða. Byrjaðu á því að hafa viðtal við tvö eða þrjú börn í söfnuðinum. Hver er þeirra uppáhaldsbiblíupersóna? Hvað gerði hann eða hún, eins og greint er frá í Biblíunni? Á hvaða vegu langar börnin að líkja eftir biblíupersónunni? Eftir viðtalið skaltu útskýra hvernig börn geta haft gagn af biblíuspilunum sem er að finna á jw.org. (Sjá BIBLÍAN OG LÍFIÐ > BÖRN.) Á hverju biblíuspili er mynd af biblíupersónu, lýsing á henni, kort sem sýnir hvar hún bjó, tímalína sem sýnir hvenær hún var uppi og þrjár spurningar og svör. Hægt er að prenta hvert spil til að geyma. Hvettu foreldra með krakka til að nýta sér þessi hjálpargögn til að kenna þeim að minnast „fyrri tíða“. – 5. Mósebók 32:7.
18 mín.: „Lærum af reyndum boðberum.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Þegar farið er yfir grein tvö skaltu bjóða áheyrendum að segja hvernig það hefur gagnast þeim að fara með reyndum boðbera í boðunarstarfið.
Söngur 4 og bæn