Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 27. apríl
VIKAN SEM HEFST 27. APRÍL
Söngur 1 og bæn
Safnaðarbiblíunám
cl kafli 23 gr. 19-23, rammi á bls. 239 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 1. Samúelsbók 26-31 (8 mín.)
Upprifjun á efni Boðunarskólans (20 mín.)
Þjónustusamkoma:
Þema mánaðrins: Verið skynsöm og „notið hverja stund“. – Ef. 5:15, 16.
7 mín.: „Bjóðum á mótið.“ Spurningar og svör. Þegar farið er yfir gr. 3 skal hafa stutta sýnikennslu sem sýnir hvernig má bjóða boðsmiðann.
10 mín.: „Til minnis vegna umdæmismótsins.“ Umræður með þátttöku áheyrenda sem ritarinn sér um. Bentu á meginreglur Biblíunnar, sem eru til umfjöllunar í greininni, og hvernig við heimfærum þær á svæðismótinu 2015. Farðu líka yfir þau atriði sem við á í bréfi til allra safnaða dagsett 3. ágúst 2013 sem fjallaði um öryggisráðstafanir á safnaðarsamkomum og mótum.
13 mín.: „Beittu kraftinum í orði Guðs í boðunarstarfinu“. Umræður með þátttöku áheyrenda. Síðan skal hafa sýnikennslu í tveimur hlutum. Fyrst kynnir boðberinn bæklinginn Gleðifréttir frá Guði fyrir húsráðanda með því að fara með hluta af 2. Tímóteusarbréfi 3:16, 17 án þess að opna Biblíuna. Síðan fer boðberinn aftur með kynninguna, en í þetta skipti les hann biblíuversið beint frá Biblíunni. Bjóddu áheyrendum að segja af hverju seinni kynningin er líklegri til árangurs.
Söngur 124 og bæn