Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 3. nóvember
VIKAN SEM HEFST 3. NÓVEMBER
Söngur 79 og bæn
Safnaðarbiblíunám:
cl kafli 15 gr. 11-19 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 5. Mósebók 14-18 (10 mín.)
Nr. 1: 5. Mósebók 15:16-16:8 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Hvers vegna er trú á Jesú forsenda hjálpræðis? – td 23B (5 mín.)
Nr. 3: Hvað er ,andi heimsins‘ og hvernig „verkar“ hann í fólki? – 1. Kor.2:12; lv kafli 5 (5 mín.)
Þjónustusamkoma:
Þema mánaðarins: „Prédika þú orðið, gef þig að því.“ – 2 Tim. 4:2
10 mín.: Hjálpum börnunum að undirbúa sig fyrir boðunarstarfið. Ræða með þátttöku áheyrenda. Spilaðu myndbandið Vertu vinur Jehóva – förum í boðunarstarfið. (Farðu inn á jw.org, og leitaðu undir BIBLÍAN OG LÍFIÐ > BÖRN.) Spurðu börnin: Hve mörg ykkar eiga starfstösku? Hvað hafið þið í töskunni? Hvað var það fyrsta sem Soffía setti í töskuna sína? Hvað fleira þurfti hún að hafa? Hvað ætluðu hún og mamma hennar að gera saman, sem var mjög mikilvægt, eftir að hún var búin að láta ofan í töskuna? Fáðu barn til að kynna blöðin.
10 mín.: Tökum eftir hvernig sumir prédika af kappi. Öldungur tekur tvo eða þrjá boðbera tali sem hafa gert ráðstafanir til að breyta stundatöflunni sinni svo þeir geti tekið meiri þátt í boðunarstarfinu eða starfað sem brautryðjendur. Ljúktu með því að rifja upp hvenær söfnuðurinn hefur samansafnanir fyrir boðunarstarfið og hvettu alla til að gera ráðstafanir til að taka sem mestan þátt í boðunarstarfinu.
10 mín.: Hvernig hefurðu tekið framförum í boðunarstarfinu? Ræða starfshirðis með þátttöku áheyrenda. Fáðu áheyrendur til að segja hvernig nýju greinarnar „Tökum framförum í boðunarstarfinu“ hafa hjálpað þeim að bæta sig á ýmsum sviðum. Ljúktu með því að hvetja alla til þess að prédika af kappi með því að nota tillögurnar í greinunum.
Söngur 100 og bæn