Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 11. ágúst
VIKAN SEM HEFST 11. ÁGÚST
Söngur 71 og bæn
Safnaðarbiblíunám:
cl kafli 11 gr. 9-16 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 4. Mósebók 7-9 (10 mín.)
Nr. 1: 4. Mósebók 9:9-23 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Hvíldardagurinn er ekki bindandi fyrir kristna menn – td 20A (5 mín.)
Nr. 3: Hvernig sýndi Jesús að hann elskaði föðurinn? – Jóh. 14:31; cf kafli 13 (5 mín.)
Þjónustusamkoma:
5 mín.: „1914-2014: Hundrað ára stjórn ríkis Guðs!“ Lestu og ræddu um efni greinarinnar efst á þessari blaðsíðu. Dagskrárliðir á þjónustusamkomum í þessum mánuði leggja áherslu á Guðsríki. Bentu á hvaða samansafnanir hafa verið skipulagðar.
10 mín.: „Notaðu nýja vefsíðusmáritið.“ Ræddu um efni smáritsins. Fáðu boðbera til að sýna hvernig megi bjóða það og nota síðan spjaldtölvu eða síma til að benda viðmælandanum á jw.org.
15 mín.: „Tökum framförum í boðunarstarfinu – verum ófeimin og tölum um Guðsríki af öryggi.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Fáðu tvo boðbera til að sviðsetja eftirfarandi samtal: Boðberi er í röð við búðarkassann í verslun. Viðskiptavinur við hliðina á honum horfir á fréttir í tímariti og segir: „Heimurinn stefnir í algert óefni. Allir þykjast hafa svörin, en ástandið versnar bara.“ Boðberinn hugsar með sjálfum sér (upphátt): „Ég ætti að segja eitthvað. Ég verð að vera ófeiminn að tala um Guðsríki.“ Boðberinn segir síðan: „Það er satt – endalaust slæmar fréttir. En mætti ég gefa þér þetta smárit? Vefsetrið, sem fjallað er um í ritinu, hefur hjálpað mér að finna svör við mörgum af stóru spurningunum í lífinu.“ Boðberinn bendir á eitt atriði í smáritinu og viðmælandinn sýnir áhuga.
Söngur 92 og bæn