Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 14. júlí
VIKAN SEM HEFST 14. JÚLÍ
Söngur 1 og bæn
Safnaðarbiblíunám:
cl kafli 10 gr. 1-7 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 3. Mósebók 21-24 (10 mín.)
Nr. 1: 3. Mósebók 23:1-14 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Kristnir menn verða að virða frumregluna um forystu – td 19B (5 mín.)
Nr. 3: Jehóva er athafnasamur – Jóh. 5:17; lv kafli 15 (5 mín.)
Þjónustusamkoma:
10 mín.: Vertu tilbúinn fyrir sérstaka átakið í ágúst. Láttu alla viðstadda, sem ekki hafa eintak, fá nýja smáritið Hvar finnum við svör við stóru spurningunum? Sviðsettu tvö sýnidæmi og notaðu tillögurnar á bls. 4. Fyrst skaltu sýna hvernig við förum almennt að því að bjóða ritið og í seinna sýnidæminu skaltu sýna hvað við getum gert ef húsráðandi sýnir áhuga eða vill ræða meira við okkur. Síðan skaltu hvetja alla til að taka virkan þátt í átakinu.
5 mín.: Nýttu þér Rannsökum daglega ritningarnar. Ræða með þátttöku áheyrenda. Fáðu áheyrendur til að segja frá hvenær þeir fari yfir dagstextann og hvernig Rannsökum daglega ritningarnar hafi hjálpað þeim.
15 mín.: „Tökum framförum í boðunarstarfinu – hefjum samræður til að boða trúna óformlega.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Hafðu eina sýnikennslu.
Söngur 107 og bæn