Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 9. ágúst
VIKAN SEM HEFST 9. ÁGÚST
□ Safnaðarbiblíunám:
cf 8. kafli gr. 18-22, rammi á bls. 86
□ Boðunarskóli:
Biblíulestur: 1. Konungabók 21-22
Nr. 1: 1. Konungabók 22:1-12
Nr. 2: María var móðir Jesú, ekki „guðsmóðir“ (td 31A)
Nr. 3: Hvað getum við lært um bænina af fordæmi Elía? (Jak. 5:18)
□ Þjónustusamkoma:
5 mín.: Tilkynningar.
10 mín.: Er þróunarkenningin byggð á vísindum? Umræður við áheyrendur byggðar á Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni) bls. 121, gr. 4, til bls. 126, gr. 2. Biðjið áheyrendur að segja frá hvernig þeir hafi notað þetta efni til að bera vitni í skólanum eða við önnur tækifæri.
10 mín.: Hvaða markmið hefurðu í þjónustu Jehóva? Umræður við áheyrendur byggðar á bókinni Skipulagður söfnuður bls.117, gr. 2, og út kaflann. Biðjið áheyrendur að segja frá hvernig foreldrar eða aðrir hjálpuðu þeim að setja sér markmið til að geta þjónað Jehóva í fullu starfi.
10 mín.: „Fræðsla handa boðberum fagnaðarerindisins.“ Umræður með spurningum og svörum. Tilkynnið hvenær næsta svæðismót verður haldið ef það er vitað. Hvetjið áheyrendur til að segja frá hvernig dagskrá síðasta svæðismóts hafi gagnast þeim.