Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.09 bls. 3
  • Bréf frá hinu stjórnandi ráði

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Bréf frá hinu stjórnandi ráði
  • Ríkisþjónusta okkar – 2009
  • Millifyrirsagnir
  • Kæru bræður og systur:
Ríkisþjónusta okkar – 2009
km 3.09 bls. 3

Bréf frá hinu stjórnandi ráði

Kæru bræður og systur:

Það er okkur mikil ánægja að skrifa ykkur, kæru trúsystkini. Okkur er eins innanbrjósts og Jóhannesi postula sem sagðist „elska sannarlega“ trúsystkini sín og gladdist yfir því að þau ‚lifðu í sannleikanum‘. (2. Jóh. 1, 4) Sannleikurinn er mikils virði fyrir okkur öll. Hann hefur frelsað okkur frá Babýlon hinni miklu, kenningum hennar og erfðavenjum sem vanvirða Guð. Og sannleikurinn hefur hjálpað okkur til að vera kærleiksrík, vingjarnleg og miskunnsöm. Hann hefur opnað okkur leiðina til að standa hrein frammi fyrir Guði og eignast von um eilíft líf.

Við erum einnig þakklát fyrir anda Jehóva sem leiðir okkur hvern dag og gefur okkur styrk. Þið hafið örugglega notið þess að kynna ykkur ýmsa þætti þessarar kærleiksríku ráðstöfunar Jehóva á umdæmismótinu „Látum anda Guðs leiða okkur“ sem haldið var síðastliðið sumar. Þar sem heimsástandið fer versnandi er nauðsynlegt að treysta á máttugan anda Jehóva til að leiða okkur þá örlagaríku daga sem fram undan eru.

Við erum vissir um að það snertir ykkur djúpt að lesa frásögurnar í árbókinni um bræður okkar og systur sem hafa liðið svo miklar þjáningar vegna trúarinnar. Og það vekur aðdáun hve mörg þessara trúföstu bræðra og systra höfðu látið skírast aðeins stuttu áður en erfiðleikarnir hófust eða voru enn óskírð. Okkur þykir ákaflega vænt um þau vegna hollustu þeirra. Þau hvikuðu ekki frá því sem rétt er. Með framúrskarandi fyrirmynd sinni styrkja þau þá ákvörðun okkar að vera áfram trúföst ríki Guðs þrátt fyrir ýmsar raunir sem við rötum í. — 1. Þess. 1:6-8.

Við vitum, kæru bræður og systur, að þið verðið að takast á við margs konar erfiðleika, bæði fjárhagslega og annars konar, til að halda fjölskyldum ykkar saman í kærleika. Það er jafnvel erfitt fyrir sum ykkar að fara út í boðunarstarfið og sækja samkomur reglulega og dyggilega. Það er ástæðan fyrir því að við höfum gert nokkrar breytingar á samkomum safnaðarins eftir miklar umræður og margar bænir. Þessar breytingar gengu í gildi 1. janúar síðastliðinn. Við treystum því að þær verði ykkur að sem mestu gagni svo að þið getið varið meiri tíma til sjálfsnáms og fjölskyldunáms.

Á síðastliðnu ári hefur verið ánægjulegt að sjá hve margir hafa látið skírast á mótunum. Meðal þeirra voru nokkrir ungir að aldri. Þið foreldrar eigið hrós skilið fyrir að ala börn ykkar þannig upp að þau kunni að meta sannleikann, og fyrir að hvetja þau til að vígja sig Jehóva og þjóna honum frá unga aldri. Þótt ýmsir erfiðleikar mæti þessum börnum í skóla eru þau samt tilbúin til að láta skírast. Það segir sína sögu um þá fræðslu sem þau hafa fengið í foreldrahúsum. — Sálm. 128:1-6.

Það er einnig lofsvert hve biblíunámskeiðum hefur fjölgað og hve mikinn þátt trúboðar og sérbrautryðjendur eiga í því með starfi sínu. Við í hinu stjórnandi ráði metum allir mikils það sem þið gerið til að segja við einlægt fólk: „Kom þú!“ og bjóða öllum sem eru þyrstir að fá „ókeypis lífsins vatn“. (Opinb. 22:17) Við bjóðum hjartanlega velkomna í söfnuð okkar út um allan heim þau 289.678 sem létu skírast niðurdýfingarskírn á nýliðnu ári til tákns um vígslu sína!

Við getum aldrei minnst of oft orða Jóhannesar postula: „Heimurinn fyrirferst og fýsn hans en sá sem gerir Guðs vilja varir að eilífu.“ (1. Jóh. 2:17) Og höfum í huga að við lifum mjög nálægt þeim tíma þegar þessi heimur „fyrirferst“! Það er því skynsamlegt að einbeita sér að því að gera vilja Guðs og vaka. (Matt. 24:42) Við sjáum aldrei eftir því að hafa gert það og við munum njóta ávinnings af velgjörðum Jehóva. — Jes. 63:7.

Við vonum að hinar hrífandi frásagnir frá ýmsum löndum í árbók þessa árs hvetji ykkur öll til að hafa hagsmuni Guðsríkis í fyrsta sæti. Okkur er ákaflega annt um ykkur og við fullvissum ykkur um að þið eruð ávallt í huga okkar og bænum. Megi Jehóva færa ykkur ríkulegar blessanir.

Bræður ykkar,

hið stjórnandi ráð Votta Jehóva

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila