Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 13. október
Söngur 174
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir þær ráðstafanir sem hafa verið gerðar fyrir dreifingarátakið sem hefst 20. október og hvetjið alla til að sækja sér birgðir af smáritinu ef þeir hafa ekki þegar gert það. Rifjið stuttlega upp kynningarorðin á bls. 8 fyrir Varðturninn október-desember og Vaknið! október-desember. Þar sem margir hafa boðið þessi blöð um nokkurt skeið mætti biðja áheyrendur um að segja frá hvernig hefur gengið að kynna þau.
35 mín.: „Ný samkomudagskrá.“* Eftir því sem tíminn leyfir ætti að lesa ritningarstaðina sem vísað er til og biðja áheyrendur um að gefa athugasemdir við þá.
Söngur 216
Vikan sem hefst 20. október
Söngur 113
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustunni.
20 mín.: Varðveitum gleðina í boðunarstarfinu. Hvetjandi ræða byggð á Varðturninum 1. ágúst 2005, bls. 15-16 gr. 11-17. Hafið viðtal við einn eða tvo boðbera sem hafa þjónað Jehóva um árabil. Hvað hefur hjálpað þeim að varðveita gleðina þótt fólk sýni boðskapnum lítinn áhuga?
20 mín.: Verum undirbúin þegar við bjóðum Varðturninn október-desember og Vaknið! október-desember. Rifjið stuttlega upp efni blaðanna og spyrjið áheyrendur hvaða greinar hafi höfðað til fólks á svæðinu og hvers vegna. Biðjið áheyrendur um tillögu að spurningu sem hægt er að nota til að hefja samræður og ritningarstað úr greininni til að lesa áður en blaðið er boðið. Ræðumaður lýkur umræðunum með því að sýna hvernig bjóða má bæði blöðin og notar til þess tillögurnar á bls. 8 eða önnur kynningarorð sem henta á svæðinu.
Söngur 148
Vikan sem hefst 27. október
Söngur 30
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið bókhaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send.
10 mín.: Staðbundnar þarfir.
30 mín.: „Sjálfsnám og fjölskyldunám er nauðsynlegt.“* Eftir því sem tíminn leyfir ætti að lesa ritningarstaðina sem vísað er til og biðja áheyrendur um að gefa athugasemdir við þá.
Söngur 142
Vikan sem hefst 3. nóvember
Söngur 100
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila skýrslu um starfið í október.
20 mín.: Boðunarskólinn árið 2009. Skólahirðirinn ræðir við áheyrendur um nýja Boðunarskólann sem er lýst í leiðbeiningunum í Námsskrá Boðunarskólans árið 2009. Beinið athyglinni að breytingunum sem verða gerðar. Hvetjið alla til að sinna verkefnum sínum vel, tjá sig um biblíulesefni vikunnar og taka til sín ábendingar skólahirðisins sem eru byggðar á Boðunarskólabókinni.
15 mín.: Bætum kennslutækni okkar. Starfshirðirinn eða annar hæfur öldungur telur upp og fjallar í stuttu máli um þau fimm lykilatriði sem geta gert kennslu okkar betri, en þeim er lýst í Varðturninum 15. janúar 2008, bls. 9-12, gr. 5-18. Eigið viðtal við einn eða tvo boðbera sem finnst leiðbeiningarnar hafa hjálpað sér að verða betri kennarar.
Söngur 91
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.