Námsskrá Boðunarskólans árið 2009
LEIÐBEININGAR
Boðunarskólinn verður með eftirfarandi sniði árið 2009.
KENNSLURIT: Biblían, Varðturninn, Lærum af kennaranum mikla [lr] og Umræðuefni úr Biblíunni [td].
Skólinn á að hefjast Á RÉTTUM TÍMA með því að bjóða alla velkomna og síðan er dagskránni hér á eftir fylgt. Eftir hvert verkefni kynnir umsjónarmaður skólans það næsta.
HÖFUÐÞÆTTIR BIBLÍULESEFNISINS: 10 mínútur. Hæfur öldungur eða safnaðarþjónn notar fyrstu fjórar mínúturnar til að fjalla um atriði úr biblíulesefni vikunnar. Undantekning á þessu er ef lesefni vikunnar hefst á nýrri biblíubók. Þá ætti að nota fyrstu fjórar mínúturnar til að fara yfir efni úr greinaröðinni „Orð Jehóva er lifandi“ sem hófst í Varðturninum 1. janúar 2004. Í vikunni sem hefst 5. janúar verður til dæmis farið yfir fyrstu fimm kaflana í 1. Mósebók. Þá ætti ræðumaðurinn að velja nokkur atriði úr greinunum sem fjalla um 1. Mósebók. Hann ætti að heimfæra efnið á þarfir safnaðarins. Hvort sem biblíulesefni vikunnar er til umræðu eða tekin atriði úr greinaröðinni „Orð Jehóva er lifandi“ er meginmarkmiðið að sýna áheyrendum fram á hvernig og hvers vegna efnið er verðmætt. Ræðumaðurinn á ekki að vera lengur en fjórar mínútur með fyrri hluta höfuðþáttanna. Hann skal gæta þess að áheyrendur fái sex mínútur til að gefa stuttar athugasemdir, 30 sekúndur eða styttri, um það sem þeim þótti athyglisvert í biblíulesefni vikunnar. Umsjónarmaður skólans biður síðan nemendur að ganga til skólastofu sinnar.
1. VERKEFNI: 4 mínútur eða skemur. Þetta er upplestur í umsjá bróður. Nemandinn á aðeins að lesa efnið en ekki koma með inngangs- og niðurlagsorð. Umsjónarmaður skólans leggur áherslu á að hjálpa nemendum að lesa eðlilega, lipurlega og með skilningi, réttum merkingaráherslum, raddbrigðum og þögnum.
2. VERKEFNI: 5 mínútur. Þetta verkefni er í umsjá systur. Nemandinn velur annaðhvort sviðsetningu af listanum á bls. 82 í Aflaðu þér menntunar í Boðunarskólanum eða honum er úthlutuð sviðsetning. Nemandinn ætti að nota stefið sem honum er úthlutað og vinna úr því á raunhæfan hátt miðað við aðstæður á boðunarsvæði safnaðarins. Þegar ekki er gefið upp heimildarefni er það undir nemandanum sjálfum komið að viða að sér efni úr ritum okkar. Umsjónarmaður skólans hefur sérstakan áhuga á því hvernig nemandinn vinnur úr efninu og hvernig hann hjálpar viðmælanda sínum að rökhugsa með hliðsjón af Biblíunni og skilja aðalatriði efnisins. Umsjónarmaður skólans velur aðstoðarmann handa nemandanum.
3. VERKEFNI: 5 mínútur. Þetta verkefni má vera í umsjá bróður eða systur. Nemandinn ætti að vinna úr stefinu sem honum er úthlutað. Þegar ekki er gefið upp heimildarefni er það undir nemandanum komið að viða að sér efni úr ritunum okkar. Þegar bróður er falið þetta verkefni ætti að flytja það sem ræðu og miða það við áheyrendur í ríkissalnum. Þegar systir sér um verkefnið ætti alltaf að flytja það í samræmi við leiðbeiningarnar um 2. verkefni. Sé verkefnið stjörnumerkt ætti alltaf að úthluta því bræðrum og þeir ættu að flytja það sem ræðu. Ef hægt er ætti að úthluta öldungi eða safnaðarþjóni stjörnumerktum verkefnum.
LEIÐBEININGAR: 1-2 mínútur. Umsjónarmaður skólans tilkynnir ekki fyrir fram hvaða þjálfunarlið nemandinn er að vinna að. Eftir 1., 2. og 3. verkefni kemur umsjónarmaður með jákvæðar athugasemdir um einhvern þátt ræðunnar sem ástæða er til að hrósa fyrir, bendir á hvers vegna ákveðinn þáttur var áhrifaríkur og vitnar gjarnan í Boðunarskólabókina. Veita má aðrar uppbyggilegar leiðbeiningar einslega eftir samkomuna eða við annað tækifæri eftir því sem þörf er á.
TÍMAVARSLA: Hvorki ræðurnar né leiðbeiningar umsjónarmannsins ættu að fara yfir tímamörkin. Fyrsta, annað og þriðja verkefni skulu stöðvuð kurteislega þegar tíminn er útrunninn. Ef bræður sem sjá um höfuðþætti lesefnisins fara yfir tímann ætti að leiðbeina þeim einslega. Allir ættu að fylgjast vel með tímanum. Skóladagskráin í heild á að taka 30 mínútur.
RÁÐLEGGINGABLAÐ: í Boðunarskólabókinni.
AÐSTOÐARLEIÐBEINANDI: Öldungaráðið getur valið annan hæfan öldung, ef kostur er, sem aðstoðarleiðbeinanda. Ef allmargir öldungar eru í söfnuðinum geta þeir skipst á að sinna þessu verkefni frá ári til árs. Aðstoðarleiðbeinandinn hefur það verkefni að leiðbeina einslega þeim bræðrum sem sjá um höfuðþætti lesefnisins ef þörf er á. Hann þarf ekki að gefa samöldungum eða safnaðarþjónum leiðbeiningar eftir hverja einustu ræðu.
UPPRIFJUN: 20 mínútur. Umsjónarmaður skólans stjórnar upprifjun á tveggja mánaða fresti. Fyrst er fjallað um höfuðþætti lesefnisins í samræmi við leiðbeiningarnar að ofan. Upprifjunin byggist á því efni sem farið hefur verið yfir í skólanum undanfarna tvo mánuði, þar á meðal í yfirstandandi viku. Ef upprifjunina ber upp á viku þegar svæðismót er haldið eða farandhirðirinn heimsækir söfnuðinn skal fresta henni um eina viku og 1., 2. og 3. verkefni næstu viku notuð í staðinn. Engar breytingar ætti að gera á dagskrá biblíulesefnis vikunnar eða yfirferð yfir höfuðþætti biblíulesefnisins.
NÁMSSKRÁ
5. jan. Biblíulestur: 1. Mósebók 1-5
Nr. 1: 1. Mósebók 3:1-15
Nr. 2: Hvers vegna er Jesús kallaður kennarinn mikli? (lr 1. kafli)
Nr. 3: Hvaða erfiði er ekki til ónýtis? (1. Kor. 15:58)
12. jan. Biblíulestur: 1. Mósebók 6-10
Nr. 1: 1. Mósebók 9:1-17
Nr. 2: Guðsríki tekur til starfa meðan óvinir Krists eru enn við lýði (td 13B)
Nr. 3: Bréf frá kærleiksríkum Guði (lr 2. kafli)
19. jan. Biblíulestur: 1. Mósebók 11-16
Nr. 1: 1. Mósebók 14:1-16
Nr. 2: Sá sem skapaði allt (lr 3. kafli)
Nr. 3: Hvernig mótar Jehóva okkur? (Jes. 64:7)
26. jan. Biblíulestur: 1. Mósebók 17-20
Nr. 1: 1. Mósebók 17:1-17
Nr. 2: Guðsríki kemur ekki fyrir tilverknað manna (td 13C)
Nr. 3: Hvað heitir Guð? (lr 4. kafli)
2. feb. Biblíulestur: 1. Mósebók 21-24
Nr. 1: 1. Mósebók 22:1-18
Nr. 2: ‚Þetta er sonur minn‘ (lr 5. kafli)
Nr. 3: a Leiðir til að láta verða rúmgott í hjörtum okkar (2. Kor. 6:11-13)
9. feb. Biblíulestur: 1. Mósebók 25-28
Nr. 1: 1. Mósebók 25:1-18
Nr. 2: Kennarinn mikli þjónaði öðrum (lr 6. kafli)
Nr. 3: Harmagedón mun binda enda á illskuna (td 14A)
16. feb. Biblíulestur: 1. Mósebók 29-31
Nr. 1: 1. Mósebók 29:1-20
Nr. 2: Af hverju ættum við ekki að vera áhyggjufull? (Matt. 6:25)
Nr. 3: Hlýðni verndar þig (lr 7. kafli)
23. feb. Biblíulestur: 1. Mósebók 32-35
Upprifjun
2. mars Biblíulestur: 1. Mósebók 36-39
Nr. 1: 1. Mósebók 39:1-16
Nr. 2: Andaverur eru æðri en við (lr 8. kafli)
Nr. 3: Harmagedón ber vitni um kærleika Guðs (td 14B)
9. mars Biblíulestur: 1. Mósebók 40-42
Nr. 1: 1. Mósebók 40:1-15
Nr. 2: Við verðum að standast freistingar (lr 9. kafli)
Nr. 3: b Vörumst sjálfstæðisanda
16. mars Biblíulestur: 1. Mósebók 43-46
Nr. 1: 1. Mósebók 44:1-17
Nr. 2: Jesús hefur vald yfir illum öndum (lr 10. kafli)
Nr. 3: Viðhorf kristinna manna til hátíðahalda (td 15A)
23. mars Biblíulestur: 1. Mósebók 47-50
Nr. 1: 1. Mósebók 48:1-16
Nr. 2: Ættum við að óttast Satan?
Nr. 3: Hjálp frá englum Guðs (lr 11. kafli)
30. mars Biblíulestur: 2. Mósebók 1-6
Nr. 1: 2. Mósebók 1:1-19
Nr. 2: Jesús kennir okkur að biðja (lr 12. kafli)
Nr. 3: Hel er ekki kvalastaður (td 16A)
6. apríl Biblíulestur: 2. Mósebók 7-10
Nr. 1: 2. Mósebók 9:1-19
Nr. 2: Lærisveinar Jesú (lr 13. kafli)
Nr. 3: c Hvernig getum við samræmt Galatabréfið 6:2 og Galatabréfið 6:5?
13. apríl Biblíulestur: 2. Mósebók 11-14
Nr. 1: 2. Mósebók 12:21-36
Nr. 2: Hvers vegna ættum við að fyrirgefa? (lr 14. kafli)
Nr. 3: Eldur er tákn gereyðingar (td 16B)
20. apríl Biblíulestur: 2. Mósebók 15-18
Nr. 1: 2. Mósebók 15:1-19
Nr. 2: Hvað felst í því að forðast falstrú?
Nr. 3: Kennsla í góðvild (lr 15. kafli)
27. apríl Biblíulestur: 2. Mósebók 19-22
Upprifjun
4. maí Biblíulestur: 2. Mósebók 23-26
Nr. 1: 2. Mósebók 24:1-18
Nr. 2: Hvað skiptir mestu máli í lífinu? (lr 16. kafli)
Nr. 3: Sagan um ríka manninn og Lasarus sannar ekki eilífar kvalir (td 16C)
11. maí Biblíulestur: 2. Mósebók 27-29
Nr. 1: 2. Mósebók 29:1-18
Nr. 2: Hvað gerir okkur hamingjusöm? (lr 17. kafli)
Nr. 3: d Hætturnar sem fylgja því að veita óverðugum hollustu
18. maí Biblíulestur: 2. Mósebók 30-33
Nr. 1: 2. Mósebók 31:1-18
Nr. 2: Hverjir fara til himna? (td 17A)
Nr. 3: Manstu eftir að þakka fyrir þig? (lr 18. kafli)
25. maí Biblíulestur: 2. Mósebók 34-37
Nr. 1: 2. Mósebók 37:1-24
Nr. 2: Er rétt að slást? (lr 19. kafli)
Nr. 3: e Hvað er undanlátssemi og af hverju ættum við að forðast hana?
1. júní Biblíulestur: 2. Mósebók 38-40
Nr. 1: 2. Mósebók 40:1-19
Nr. 2: Vilt þú alltaf vera fyrstur? (lr 20. kafli)
Nr. 3: Guð veitir hjálpræði aðeins vegna lausnarfórnar Jesú (td 18A)
8. júní Biblíulestur: 3. Mósebók 1-5
Nr. 1: 3. Mósebók 4:1-15
Nr. 2: Er rétt að monta sig? (lr 21. kafli)
Nr. 3: f Hvernig eiga kristnir menn að fara með yfirráð?
15. júní Biblíulestur: 3. Mósebók 6-9
Nr. 1: 3. Mósebók 8:1-17
Nr. 2: „Einu sinni hólpinn, alltaf hólpinn“ er ekki biblíuleg kenning (td 18B)
Nr. 3: Af hverju er rangt að ljúga? (lr 22. kafli)
22. júní Biblíulestur: 3. Mósebók 10-13
Nr. 1: 3. Mósebók 11:29-45
Nr. 2: Hvers vegna veikist fólk? (lr 23. kafli)
Nr. 3: Blessanir sem skírðir lærisveinar njóta
29. júní Biblíulestur: 3. Mósebók 14-16
Upprifjun
6. júlí Biblíulestur: 3. Mósebók 17-20
Nr. 1: 3. Mósebók 19:1-18
Nr. 2: Biblían kennir ekki að allir hljóti hjálpræði (td 18C)
Nr. 3: Það er rangt að stela (lr 24. kafli)
13. júlí Biblíulestur: 3. Mósebók 21-24
Nr. 1: 3. Mósebók 22:17-33
Nr. 2: Geta þeir sem eru vondir breytt sér? (lr 25. kafli)
Nr. 3: Hvernig sýna sannkristnir menn fátækum umhyggju?
20. júlí Biblíulestur: 3. Mósebók 25-27
Nr. 1: 3. Mósebók 25:39-54
Nr. 2: Af hverju er svona erfitt að gera rétt? (lr 26. kafli)
Nr. 3: Hjónabandið verður að vera heiðvirt (td 19A)
27. júlí Biblíulestur: 4. Mósebók 1-3
Nr. 1: 4. Mósebók 3:1-20
Nr. 2: Það krefst sjálfstjórnar að sýna mildi
Nr. 3: Hvaða Guð tilbiður þú? (lr 27. kafli)
3. ágúst Biblíulestur: 4. Mósebók 4-6
Nr. 1: 4. Mósebók 4:1-16
Nr. 2: Hverjum átt þú að hlýða? (lr 28. kafli)
Nr. 3: Kristnir menn verða að virða frumregluna um forystu (td 19B)
10. ágúst Biblíulestur: 4. Mósebók 7-9
Nr. 1: 4. Mósebók 9:1-14
Nr. 2: Er Guð ánægður með allar veislur? (lr 29. kafli)
Nr. 3: Hvernig sýnum við Jehóva hollustu?
17. ágúst Biblíulestur: 4. Mósebók 10-13
Nr. 1: 4. Mósebók 13:17-33
Nr. 2: Hvernig getum við sigrast á ótta? (lr 30. kafli)
Nr. 3: Ábyrgð foreldra gagnvart börnum (td 19C)
24. ágúst Biblíulestur: 4. Mósebók 14-16
Nr. 1: 4. Mósebók 14:26-43
Nr. 2: Hvað þýðir það að elska lög Guðs? (Sálm. 119:97)
Nr. 3: Hvar fáum við huggun? (lr 31. kafli)
31. ágúst Biblíulestur: 4. Mósebók 17-21
Upprifjun
7. sept. Biblíulestur: 4. Mósebók 22-25
Nr. 1: 4. Mósebók 22:20-35
Nr. 2: Jehóva verndaði Jesú (lr 32. kafli)
Nr. 3: Kristnir menn eiga ‚aðeins að giftast í Drottni‘ (td 19D)
14. sept. Biblíulestur: 4. Mósebók 26-29
Nr. 1: 4. Mósebók 27:1-14
Nr. 2: Hvað er „umvöndun“ og af hverju er hún mikilvæg? (Ef. 6:4, Biblían 1981)
Nr. 3: Jesús getur verndað okkur (lr 33. kafli)
21. sept. Biblíulestur: 4. Mósebók 30-32
Nr. 1: 4. Mósebók 32:1-15
Nr. 2: Hvað gerist þegar fólk deyr? (lr 34. kafli)
Nr. 3: Sannkristnir menn stunda ekki fjölkvæni (td 19E)
28. sept. Biblíulestur: 4. Mósebók 33-36
Nr. 1: 4. Mósebók 33:1-23
Nr. 2: Dánir geta fengið upprisu (lr 35. kafli)
Nr. 3: Ríki Guðs skarar fram úr stjórnum manna
5. okt. Biblíulestur: 5. Mósebók 1-3
Nr. 1: 5. Mósebók 2:1-15
Nr. 2: Hvíldardagurinn er ekki bindandi fyrir kristna menn (td 20A)
Nr. 3: Hverjir verða reistir upp og hvar munu þeir búa? (lr 36. kafli)
12. okt. Biblíulestur: 5. Mósebók 4-6
Nr. 1: 5. Mósebók 4:15-28
Nr. 2: Gleymum ekki Jehóva og syni hans (lr 37. kafli)
Nr. 3: Hvenær er hægt að segja að minna sé betra? (Orðskv. 15:16)
19. okt. Biblíulestur: 5. Mósebók 7-10
Nr. 1: 5. Mósebók 9:1-14
Nr. 2: Hvers vegna ættum við að elska Jesú? (lr 38. kafli)
Nr. 3: Hvíldardagsákvæðið var ekki gefið kristnum mönnum (td 20B)
26. okt. Biblíulestur: 5. Mósebók 11-13
Upprifjun
2. nóv. Biblíulestur: 5. Mósebók 14-18
Nr. 1: 5. Mósebók 15:1-15
Nr. 2: Hvað er fólgið í því að óttast Guð?
Nr. 3: Guð man eftir syni sínum (lr 39. kafli)
9. nóv. Biblíulestur: 5. Mósebók 19-22
Nr. 1: 5. Mósebók 22:1-19
Nr. 2: Hvernig getum við glatt Guð? (lr 40. kafli)
Nr. 3: Upphaf og endir hvíldardags Guðs (td 20C)
16. nóv. Biblíulestur: 5. Mósebók 23-27
Nr. 1: 5. Mósebók 25:1-16
Nr. 2: Börn sem gleðja Guð (lr 41. kafli)
Nr. 3: g Hvað ætti að vera heilagt í augum okkar?
23. nóv. Biblíulestur: 5. Mósebók 28-31
Nr. 1: 5. Mósebók 30:1-14
Nr. 2: Af hverju þurfum við að vinna? (lr 42. kafli)
Nr. 3: Guð ber ekki sök á erfiðleikum heimsins (td 21A)
30. nóv. Biblíulestur: 5. Mósebók 32-34
Nr. 1: 5. Mósebók 32:1-21
Nr. 2: Hvað er „hinn mikli dagur Drottins“? (Sef. 1:14)
Nr. 3: Hverjir eru bræður okkar og systur? (lr 43. kafli)
7. des. Biblíulestur: Jósúabók 1-5
Nr. 1: Jósúabók 5:1-15
Nr. 2: Veljum okkur vini sem elska Guð (lr 44. kafli)
Nr. 3: Hvað er Guðsríki og hvernig sýnum við að við styðjum það? (lr 45. kafli)
14. des. Biblíulestur: Jósúabók 6-8
Nr. 1: Jósúabók 8:1-17
Nr. 2: Ferst heimurinn aftur í flóði? (lr 46. kafli)
Nr. 3: Af hverju eru ráðin í Prédikaranum 7:21, 22 viturleg?
21. des. Biblíulestur: Jósúabók 9-11
Nr. 1: Jósúabók 9:1-15
Nr. 2: Hvernig vitum við að Harmagedón er í nánd? (lr 47. kafli)
Nr. 3: Þú getur búið í friðsælum nýjum heimi Guðs (lr 48. kafli)
28. des. Biblíulestur: Jósúabók 12-15
Upprifjun
[Neðanmáls]
a Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.
b Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.
c Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.
d Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.
e Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.
f Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.
g Skal aðeins fela bræðrum, helst öldungum eða safnaðarþjónum.