Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.08 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2008
Ríkisþjónusta okkar – 2008
km 4.08 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða sérræðuna, en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Markmiðið ætti að vera að hefja biblíunámskeið hjá þeim sem hafa ekki þegar þegið það. Júní: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Júlí: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna?

◼ Barmmerki fyrir landsmótið verða send til safnaðanna án þess að sérstaklega þurfi að panta þau. Ef söfnuðirnir þurfa fleiri merki má panta þau á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Plasthulstur fyrir barmmerki þarf að panta sérstaklega fyrir þá safnaðarmenn sem óska þess.

◼ Safnaðarritarar eiga að tryggja að nóg sé til af umsóknareyðublöðum fyrir brautryðjandastarf (S-205) og aðstoðarbrautryðjandastarf (S-205b). Þau má panta á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Eigið fyrirliggjandi að minnsta kosti eins árs birgðir. Farið yfir umsóknir um brautryðjandastarf til að ganga úr skugga um að þær séu rétt útfylltar áður en þið sendið þær deildarskrifstofunni.

◼ Deildarskrifstofan þarf að hafa rétt heimilisföng og símanúmer allra umsjónarmanna í forsæti og ritara. Vinsamlegast tilkynnið allar breytingar tafarlaust.

◼ Ef boðberar hafa í hyggju að sækja samkomur á erlendri grund og vilja fá heimilisfang ríkissala og upplýsingar um samkomutíma eða þeir vilja spyrjast fyrir um mót erlendis ættu þeir að beina fyrirspurnum til deildarskrifstofu viðkomandi lands. Póstfangaskrá er að finna aftast í nýjustu árbókinni og öðrum nýlegum bókum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila