Upprifjun á efni boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 28. apríl 2008. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 3. mars til 28. apríl 2008. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐUR
1. Hvers vegna er mikilvægt að nota úthlutað efni í ræðum okkar og hvernig getum við gert það? [be bls. 234 gr. 1–bls. 235 gr. 1]
2. Hvers vegna er áhrifaríkt að beita spurningum þegar við kennum? [be bls. 236 gr. 1-5]
3. Hvernig geta spurningar hjálpað áheyrendum okkar að rökræða málin? [be bls. 237 gr. 3–bls. 238 gr. 1]
4. Hvers vegna er mikilvægt að beita spurningum af færni til að draga fram tilfinningar áheyrenda okkar þegar við kennum? (Orðskv. 20:5; Matt. 16:13-16; Jóh. 11:26) [be bls. 238 gr. 3-5]
5. Hvers vegna ættum við að nota samlíkingar þegar við kennum? (1. Mós. 22:17; Jer. 13:11) [be bls. 240 gr. 1-3]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvaða leiðbeinandi meginreglur koma fram í Markúsi sem geta hjálpað okkur að öðlast líf undir stjórn Guðsríkis? [si bls. 186 gr. 32]
7. Hvernig fá þjónar Guðs hjálp frá heilögum anda hans nú á dögum? (Jóh. 14:25, 26) [be bls. 19 gr. 2-3]
8. Hvað er það mikilvægasta sem lestrarkunnátta veitir okkur? [be bls. 21 gr. 3]
9. Hvað felst í námi? [be bls. 27 gr. 3–bls. 28 gr. 1]
10. Hvernig byggir Lúkasarguðspjallið upp trú á að Hebresku ritningarnar séu innblásnar af Guði? [si bls. 192 gr. 30-31]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Af hverju leiðrétti Jesús manninn sem ávarpaði hann: „Góði meistari“? (Mark. 10:17, 18) [w08 15.2. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir Markúsarguðspjalls“]
12. Hvers vegna líkti Jesús Ísraelsþjóðinni við fíkjutré? (Mark. 11:12-14, 20, 21) [wE03 15.5. bls. 26 gr. 2-3]
13. Hvað var gefið í skyn með orðum engilsins Gabríels þegar hann sagði að María yrði þunguð og heilagur andi kæmi yfir hana og yfirskyggði hana? (Lúk. 1:30, 31, 34, 35) [w08 15.3. „Orð Jehóva er lifandi — Höfuðþættir Lúkasarguðspjalls“; it-2 bls. 56 gr. 2]
14. Var það rétt hjá faríseunum að lærisveinar Jesú hefðu gert eitthvað sem ‚ekki var leyfilegt á hvíldardegi‘? (Lúk. 6:1, 2) [gt 31]
15. Hvaða lærdóm má draga af því sem Jesús sagði við Mörtu? (Lúk. 10:40-42) [wE99 1.9. bls. 31]