Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 10. desember
Söngur 46
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
20 mín.: Boðunarskólinn árið 2008. Ræða í umsjón skólahirðisins. Fjallið um þau atriði í leiðbeiningunum og námsskrá skólans sem leggja þarf áherslu á í söfnuðinum. Námsskráin fylgdi Ríkisþjónustunni í október. Fjallið um hlutverk aðstoðarleiðbeinandans. Hvetjið alla til að sinna verkefnum sínum vel, koma með athugasemdir um biblíulesefni vikunnar og taka til sín tillögurnar sem sóttar eru í Boðunarskólabókina.
15 mín.: „Hughreystum niðurdregna.“* Segið eina eða tvær stuttar frásögur af svæðinu.
Söngur 34
Vikan sem hefst 17. desember
Söngur 28
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustunni. Hvetjið alla til að horfa á mynddiskinn Jehovah’s Witnesses — Organized to Share the Good News til að búa sig undir umræður á þjónustusamkomu í vikunni sem hefst 31. desember.
15 mín.: „Við verðum að vera kappsamir boðberar.“* Takið viðtal við boðbera sem er duglegur í boðunarstarfinu. Spyrjið hann eftirfarandi: Hvað hefurðu gert til að viðhalda eldmóðinum? Hvað hefur hjálpað þér til þess?
20 mín.: „Bjóðum blöð sem bera sannleikanum vitni.“* Biðjið áheyrendur um að gefa athugasemdir um greinina á bls. 8 í Ríkisþjónustunni í nóvember 2006. Hvetjið alla til að lesa Varðturninn janúar-mars og Vaknið! janúar-mars og koma með þessi blöð á samkomuna í næstu viku.
Söngur 139
Vikan sem hefst 24. desember
Söngur 212
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið bókhaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Rifjið upp ritatilboðið í janúar og sviðsetjið eina tillögu.
15 mín.: Verum undirbúin þegar við bjóðum nýjustu blöðin. Umræður við áheyrendur byggðar á Varðturninum janúar-mars og Vaknið! janúar-mars. Eftir að hafa farið stuttlega yfir efni blaðanna ætti að spyrja áheyrendur hvaða greinar þeir telji höfða til fólks á svæðinu og hvers vegna. Biðjið áheyrendur um að koma með tillögur að kynningu á þeim greinum sem þeir ætla að nota. Hvaða spurninga mætti spyrja til að hefja samtalið? Hvaða ritningarstað úr greininni væri hægt lesa? Hvernig er hægt að tengja ritningarstaðinn við greinina? Sviðsetjið tillögurnar úr Ríkisþjónustunni eða einhverja af tillögum áheyrenda. Kynnið bæði blöðin.
20 mín.: „Settu þér það markmið að halda biblíunámskeið.“* Takið viðtal við einn eða tvo boðbera sem hafa nýverið komið af stað biblíunámskeiði. Hvernig hófst það? Hvernig gengur námskeiðið?
Söngur 21
Vikan sem hefst 31. desember
Söngur 89
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila skýrslu um starfið í desember.
15 mín.: Hvað fær okkur til að sýna guðrækni? Hvetjandi ræða byggð á Varðturninum 1. apríl 1990, bls. 16-17.
25 mín.: „Mesta boðunarátak sögunnar.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá jákvæðum viðbrögðum ættingja, kunningja, biblíunemenda og fólks sem við heimsækjum reglulega eftir að hafa horft á myndbandið Jehovah’s Witnesses — Organized to Share the Good News.
Söngur 202
Vikan sem hefst 7. janúar
Söngur 159
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
20 mín.: „Umdæmismót Votta Jehóva 2008.“* Í umsjón ritara safnaðarins. Minnið boðbera á nauðsyn þess að huga tímanlega að gistingu fyrir mótið.
Söngur 99
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.