Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.07 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2007
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 13. ágúst
  • Vikan sem hefst 20. ágúst
  • Vikan sem hefst 27. ágúst
  • Vikan sem hefst 3. september
Ríkisþjónusta okkar – 2007
km 8.07 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 13. ágúst

Söngur 20

15 mín.: Staðbundnar tilkynningar.

15 mín.: Það er okkur til góðs að virða meginregluna um yfirráð. Ræða og umræður við áheyrendur byggðar á 15. kafla bókarinnar Organized to Do Jehovah’s Will (Söfnuður skipulagður til að gera vilja Jehóva) sem finna má í viðaukanum á bls. 5 til 6.

15 mín.: „Fjölskyldur, tilbiðjið Jehóva í sameiningu.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá hvaða gagn þeir hafi haft af því að taka þátt í boðunarstarfinu sem fjölskylda. Undirbúa má einn eða tvo boðbera fyrir fram.

Söngur 48 og lokabæn.

Vikan sem hefst 20. ágúst

Söngur 100

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir greinina „Ný dagskrá fyrir sérstaka mótsdaginn.“ Tilkynnið hvenær næsti sérstaki mótsdagur verður haldinn ef það er vitað.

15 mín.: Hefjum biblíunámskeið í fyrstu heimsókn nú í september. Umræður við áheyrendur. Í september munum við bjóða Hvað kennir Biblían? og reyna að fara yfir nokkrar greinar með húsráðandanum í fyrstu heimsókn. Rifjið upp kynningarorðin í viðauka Ríkisþjónustunnar í janúar 2006 og hafið eitt eða tvö sýnidæmi um hvernig hægt er að hefja biblíunámskeið í fyrstu heimsókn.

20 mín.: „Hvernig er bóknámshópurinn okkur til gagns?* Takið með efni úr bókinni Organized to Do Jehovah’s Will (Söfnuður skipulagður til að gera vilja Jehóva) á bls. 41 gr. 2 þegar farið er yfir fimmtu grein.

Söngur 6 og lokabæn.

Vikan sem hefst 27. ágúst

Söngur 98

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið bókhaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 10 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. september og Vaknið! júlí-september.

10 mín.: ‚Aflið vina með hinum rangláta mammón‘. Ræða í umsjón öldungs byggð á Varðturninum 1. maí 1995 bls. 12-17.

25 mín.: „Verðugt markmið fyrir næsta þjónustuár.“* Takið viðtal við einn eða tvo boðbera sem hafa nýlega verið aðstoðarbrautryðjendur. Hvaða breytingar þurftu þeir að gera á stundarskrá sinni? Hvaða blessun hlutu þeir? Það væri gott ef annar viðmælandinn væri boðberi sem gat verið aðstoðarbrautryðjandi með hjálp og stuðningi fjölskyldunnar. Þegar farið er yfir grein 9 mætti nefna hvenær farandhirðirinn kemur næst í heimsókn ef það er vitað.

Söngur 196 og lokabæn.

Vikan sem hefst 3. september

Söngur 50

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustunni. Minnið boðbera á að skila skýrslu um starfið í ágúst.

15 mín.: „Það er heiður að mega þjóna Guði.“* Biðjið áheyrendur um að gefa athugasemdir um ritningarstaðina sem vísað er til eftir því sem tíminn leyfir.

20 mín.: „Hvernig má hefja biblíunámskeið hjá þeim sem hafa fengið blöðin?“* Hafið stutta sýnikennslu og notið tillögurnar í grein 2. Minnið boðbera á að skrá má námskeið á starfsskýrsluna ef það hefur verið haldið í tvö skipti eftir að námsaðferðin var sýnd og ástæða er til að ætla að það muni halda áfram.

Söngur 2 og lokabæn.

* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila