Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða einhverja aðra samkomu eða mót, en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Reynið í framhaldinu að bjóða Hvað kennir Biblían? með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið. Júní: Er til skapari sem er umhugað um okkur? eða Farsælt fjölskyldulíf — hver er leyndardómurinn? Júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna?
◼ Landsmótið 2007 verður haldið dagana 10. - 12. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi. Stefið er „Fylgjum Kristi“.
◼ Barmmerki fyrir landsmótið verða send til safnaðanna án þess að sérstaklega þurfi að panta þau. Ef söfnuðirnir þurfa fleiri merki má panta þau á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Plasthulstur fyrir barmmerki þarf að panta sérstaklega fyrir þá safnaðarmenn sem óska þess.
◼ Í vikunni, sem hefst 6. ágúst 2007, verður byrjað að fara yfir bókina Mesta mikilmenni sem lifað hefur í safnaðarbóknáminu. Þess skal gætt að nægar birgðir séu af bókinni í söfnuðunum um það leyti. Námsskrá verður birt síðar.
◼ Safnaðarritarar eiga að tryggja að nóg sé til af umsóknareyðublöðum fyrir brautryðjandastarf (S-205) og aðstoðarbrautryðjandastarf (S-205b). Þau má panta á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Eigið fyrirliggjandi að minnsta kosti eins árs birgðir. Farið yfir umsóknir um brautryðjandastarf til að ganga úr skugga um að þær séu rétt útfylltar áður en þið sendið þær deildarskrifstofunni.
◼ Deildarskrifstofan þarf að hafa rétt heimilisföng og símanúmer allra umsjónarmanna í forsæti og ritara. Vinsamlegast tilkynnið allar breytingar tafarlaust.
◼ Ef boðberar hafa í hyggju að sækja samkomur á erlendri grund og vilja fá heimilisfang ríkissala og upplýsingar um samkomutíma eða þeir vilja spyrjast fyrir um mót erlendis ættu þeir að beina fyrirspurnum til deildarskrifstofu viðkomandi lands. Póstfangaskrá er að finna á öftustu síðu nýjustu árbókarinnar og öðrum nýlegum bókum.