Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.07 bls. 11
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2007
Ríkisþjónusta okkar – 2007
km 4.07 bls. 11

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 30. apríl 2007. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 5. mars til 30. apríl 2007. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐUR

1. Hvernig getum við haft ræðuuppkastið einfalt? [be bls. 168 gr. 4]

2. Nefndu fjórar leiðir til að raða efni á rökrétta vegu. [be bls. 170 gr. 3 –​bls. 172 gr. 4]

3. Hvað ættum við að hafa í huga þegar við ákveðum hvaða efni við höfum með í ræðu? [be bls. 173 gr. 1-2]

4. Hverjir eru kostir þess að mæla af munni fram? [be bls. 175 gr. 2-4]

5. Hvers vegna er samtalsform mikilvægt og hvernig getum við tekið framförum í því? [be bls. 179 gr. 4, rammi; bls. 180, rammi]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvernig ætti bróðir að undirbúa sig áður en hann fer yfir höfuðþætti biblíulesefnisins? [be bls. 47 gr. 3-4]

7. Hvað er enn mikilvægara í sambandi við lausnargjald Krists en það gagn sem við hljótum af því? [wE05 1.11. bls. 14 gr. 1]

8. Hvernig ætti að nota ritningastaðina sem vísað er til í ræðuuppkasti? [be bls. 53 gr. 1-2]

9. Hvaða markmið hafði Jesús með kennslu sinni og hvernig getum við líkt eftir honum? [be bls. 57 gr. 1]

10. Hvers vegna er áhrifaríkt að nota andstæður við kennslu? [be bls. 57 gr. 3-4]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvernig getum við tekið til okkar orðin í Jeremía 6:16 um að ganga á ,gömlu götunum‘, og finna ,hamingjuleiðina‘?

12. Hvers vegna valdi Jehóva storkinn til að kenna ótrúum Gyðingum og hvað getum við lært af því? (Jer. 8:7)

13. Hvernig tengist Jeremía 15:17 viðhorfi okkar til afþreyingar?

14. Hvernig eru mennirnir eins og leir í höndum Jehóva, leirkerasmiðsins mikla? (Jer. 18:5-11)

15. Hvaða þýðingu hefur niðurröðun þjóðanna í Jeremía 25:17-26 fyrir okkur í dag?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila