Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 12. febrúar
Söngur 52
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
25 mín.: „Viðfrægjum dáðir Jehóva.“* Í umsjón starfshirðis. Tilkynnið tíma og staðsetningu minningarhátíðarinnar. Nefnið hvaða aukasamansafnanir verða á dagskrá og hvert markmið safnaðarsins er um fjölda aðstoðarbrautryðjenda í apríl.
10 mín.: Boðum fagnaðarerindið með skipulegum hætti. Ræða og umræður við áheyrendur byggðar á efni úr 9. kafla bókarinnar Organized to Do Jehovah’s Will (Söfnuður skipulagður til að gera vilja Jehóva) sem finna má í viðaukanum á bls. 3, 4 og 9.
Söngur 147 og lokabæn.
Vikan sem hefst 19. febrúar
Söngur 198
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
20 mín.: „Líkjum eftir kennaranum mikla þegar við notum bókina Hvað kennir Biblían?“* Bregðið upp stuttri sýnikennslu þegar farið er yfir grein 6. Boðberi notar rammann í lok 6. kafla í Hvað kennir Biblían? til að rifja upp efni kaflans með nemanda sínum.
20 mín.: Getur þú hafið biblíunámskeið? Umræður við áheyrendur. Farið yfir tillögurnar í viðauka Ríkisþjónustunnar í janúar 2006, bls. 3-6. Sýnið hvernig hægt er að hefja biblíunámskeið í fyrstu heimsókn og notið til þess tillögurnar á bls. 6 eða aðra sem hentar á svæðinu. Biðjið áheyrendur um að segja frá góðum árangri sem þeir hafa náð og hvernig hefur gengið að koma af stað biblíunámskeiðum með því að nota Hvað kennir Biblían?
Söngur 220 og lokabæn.
Vikan sem hefst 26. febrúar
Söngur 29
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 12 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. mars og Vaknið! janúar-mars. Í annarri sýnikennslunni gæti boðberinn verið á viðskiptasvæði.
15 mín.: „Gleymum ekki þeim sem eru óvirkir.“* Takið með efni úr Varðturninum 1. júlí 2004, bls. 30-31 gr. 13-16.
20 mín.: „Líkjum eftir Kristi í boðunarstarfinu.“* Biðjið áheyrendur um að lesa og skýra ritningarstaði sem vísað er í, eftir því sem tími leyfir.
Söngur 18 og lokabæn.
Vikan sem hefst 5. mars
Söngur 32
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustunni.
20 mín.: Notum sérstöku boðsmiðana á minningarhátíðina. Umsjónarmaður í forsæti les og fjallar um bréf frá 3. janúar 2007 þar sem gefnar eru leiðbeiningar um hvernig við eigum að nota sérstaka boðsmiðann á minningarhátíðina. Látið alla viðstadda fá eitt eintak og hafið tvö eða þrjú stutt sýnidæmi um hvernig hægt er að nota boðsmiðann.
15 mín.: „Treyst fyrir fjársjóði.“* Biðjið áheyrendur um að gefa athugasemdir um ritningarstaðina sem vísað er í, eftir því sem tími leyfir.
Söngur 104 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.