Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 11. desember
Söngur 174
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Boðunarskólinn árið 2007. Ræða og viðtal í umsjón skólahirðisins. Ræðið um atriði í leiðbeiningunum og Námsskrá skólans sem leggja þarf áherslu á í söfnuðinum. Námsskráin fylgdi Ríkisþjónustunni í október. Takið fram að skólahirðirinn tilkynnir ekki fyrir fram hvaða þjálfunarlið nemandi á að vinna að. Á árinu 2007 lesum við frá 24. kafla Jesaja til loka Malakís og ljúkum þannig við Hebresku ritningarnar. Það gefur bræðrum, sem sjá um höfuðþætti biblíulesefnisins og þeim sem gefa athugasemdir, gott tækifæri til að styðjast við þau rit sem fjalla sérstaklega um þessar spádómsbækur. Takið viðtal við tvo eða þrjá boðbera. Það gætu verið nýr nemandi, ungur nemandi sem hefur tekið góðum framförum og reyndur nemandi. Biðjið þá um að segja frá hvaða áhrif skólinn hafi á boðunarstarfið og samband þeirra við Jehóva. Hvetjið alla til að sinna verkefnum sínum af kostgæfni, koma með athugasemdir um biblíulesefni vikunnar og taka til sín tillögurnar sem sóttar eru í Boðunarskólabókina.
20 mín.: „Afræktu ekki þinn fyrri kærleika.“* Biðjið áheyrendur um að koma með athugasemdir um ritningastaðina eftir því sem tíminn leyfir.
Söngur 193 og lokabæn.
Vikan sem hefst 18. desember
Söngur 150
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustunni. Nefnið hvaða samansafnanir fyrir boðunarstarfið eru á dagskrá yfir hátíðirnar.
15 mín.: „Förum aftur til þeirra sem sýndu boðskapnum einhvern áhuga.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá hvernig þeir hafa fengið heimilisfang eða símanúmer hjá áhugasömu fólki í götustarfinu eða við óformlegan vitnisburð svo að hægt var að hafa samband við það aftur. Boðberar geta sagt frá dæmum þar sem gengið hefur vel að fara í endurheimsóknir til slíkra aðila. Það má undirbúa einn eða tvo boðbera fyrir fram.
20 mín.: „Það færir blessun að bjóða sig fúslega fram.“* Takið viðtal við einn eða tvo boðbera sem eru til fyrirmyndar í að bjóða fram aðstoð sína. Hvernig hafa þeir sýnt fúsleika sinn til að hjálpa? Hvaða breytingar hafa þeir þurft að gera og hvernig gátu þeir gert þær? Hvaða blessana hafa þeir notið í kjölfarið?
Söngur 108 og lokabæn.
Vikan sem hefst 25. desember
Söngur 210
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 8 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. janúar og Vaknið! janúar-mars. Ljúkið báðum sýnidæmunum með því að varpa fram áhugaverðri spurningu sem hægt er að svara í næstu heimsókn með hjálp bókarinnar Hvað kennir Biblían?
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
20 mín.: „Ert þú með einkastarfssvæði?“* Biðjið starfshirðirinn um að segja nokkur orð um landamæri safnaðarsvæðisins og hve oft sé farið yfir allt svæði safnaðarins.
Söngur 219 og lokabæn.
Vikan sem hefst 1. janúar
Söngur 158
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn skýrslum um starfið í desember.
20 mín.: Upplýsingar um framgang boðunarstarfsins. Ræða og umræður við áheyrendur byggðar á efni úr Organized to Do Jehovah’s Will (Söfnuður skipulagður til að gera vilja Jehóva) sem finna má í viðaukanum á bls. 3-5.
20 mín.: Að ná tökum á streitu. Ræða með þátttöku áheyranda byggð á greininni „Þú getur náð tökum á streitu“ í Vaknið! apríl-júní 2005 bls. 7-10.
Söngur 65 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.