Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 11.06 bls. 11
  • Við munum fara yfir bókina Farsælt fjölskyldulíf

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Við munum fara yfir bókina Farsælt fjölskyldulíf
  • Ríkisþjónusta okkar – 2006
Ríkisþjónusta okkar – 2006
km 11.06 bls. 11

Við munum fara yfir bókina Farsælt fjölskyldulíf

Það var ánægjulegt þegar bókin Farsælt fjölskyldulíf kom út á landsmótinu í sumar. Frá og með 8. janúar 2007 munum við fara yfir hana í safnaðarbóknáminu. Við viljum örugglega ekki missa af þessari yfirferð þar sem við getum kynnst hagnýtum leiðbeiningum Biblíunnar um farsælt fjölskyldulíf. Námsskráin gefur okkur tækifæri til að fara ítarlega yfir hverja grein og biblíuversin sem fylgja. Farið verður yfir allan fyrsta kaflann í fyrstu námsvikunni þar sem flestir ritningarstaðirnir eru útskrifaðir í þeim kafla. Af sömu ástæðu verður líka farið yfir 15. kaflann í einni námsstund. Hinum köflunum verður hins vegar skipt á milli tveggja námsstunda og um það bil hálfur kafli tekinn fyrir í hverri viku. Það gefst því nægur tími til að lesa og ræða um alla ritningastaðina sem vísað er til auk þess sem við athugum vandlega hvernig ritningastaðirnir eru útskýrðir í hverri grein.

Upprifjunarramminn í lok hvers kafla er mikilvægur hluti af náminu. Bóknámsumsjónarmenn ættu því að taka frá nægan tíma til að fara yfir spurningarnar í rammanum og ritningarstaðina sem vísað er til. Þeir ættu að undirbúa sig vel fyrir námið og hvetja alla sem tilheyra hópnum, líka þá nýju, til að undirbúa sig vel, mæta reglulega og taka þátt. — od 69-72.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila