Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í nóvember: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi á engin börn má bjóða smáritið Langar þig að vita meira um Biblíuna? eða annað smárit sem á vel við. Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Janúar: Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Einnig má bjóða Þekkingarbókina og Haltu vöku þinni! Febrúar: Nálægðu þig Jehóva.
◼ Deildarskrifstofan hefur gefið út bækling með sjö námsgreinum úr Varðturninum (br4-IC). Undanfarna mánuði höfum við haft greinarnar um biblíubækurnar í Varðturninum og því hafa ekki komist fyrir nægilega margar námsgreinar. Þess vegna var ákveðið að bæta við námsgreinum á þennan hátt. Söfnuðirnir fá sendar birgðir af þessum bæklingi um miðjan október sem eiga að nægja öllum í söfnuðinum. Það er ekki ætlast til þess að við dreifum honum í boðunarstarfinu heldur á að fara yfir námsgreinarnar í Varðturnsnáminu. Námsskráin á bls. 2 segir til um hvenær það skal gert. Þegar því er lokið höldum við áfram að nema efnið í hefðbundinni útgáfu Varðturnsins. Allir ættu að halda til haga eintaki af þessum bæklingi þar sem vísað verður í hann í ræðudrögum og nýjum útgáfum af Lykli að efnisskrá Varðturnsins.