Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 10. júlí
Söngur 4
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir rammagreinina „Notarðu boðsmiða?“
15 mín.: Skipulag og stjórn safnaðarins. Ræða og umræður við áheyrendur byggð á kafla 4 í bókinni Söfnuður sem er skipulagður til að gera vilja Jehóva. Efnið er að finna á bls. 3 og 4 í viðaukanum.
20 mín.: „Hjálpaðu biblíunemendum að meta að verðleikum óviðjafnanlega eiginleika Jehóva.“* Hafið stutta sýnikennslu sem sýnir hvernig hægt er að nota spurningar til að hjálpa biblíunemanda að íhuga atriðin í upprifjunarrammanum í lok fyrsta kaflans í Hvað kennir Biblían?
Söngur 88 og lokabæn.
Vikan sem hefst 17. júlí
Söngur 99
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustunni. Farið stuttlega yfir bls. 32 í Varðturninum, 1. september 2000. Bendið á hvað það sé gott að hafa reglubundna dagskrá fyrir biblíulestur. Það á líka við þegar við erum í sumarfríi eða þegar annað raskar venjum okkar.
15 mín.: Kærleikur og auðmýkt — mikilvægir eiginleikar í boðunarstarfinu. Ræða byggð á Varðturninum, 1. október 2002, bls. 15-17, gr. 13-20.
20 mín.: „Líkjum eftir Jehóva, hinum ‚sæla Guði‘.“* Biðjið áheyrendur um að segja hvað hafi hjálpað þeim til að halda áfram að vera glaðir og jákvæðir í boðunarstarfinu.
Söngur 189 og lokabæn.
Vikan sem hefst 24. júlí
Söngur 218
15 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 6 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. ágúst og Vaknið! júlí - september. Sýnið í annarri sýnikennslunni hvernig bregðast má við samræðutálmum eins og „Við erum kristin á þessu heimili“. — Sjá Biblíusamræðubæklinginn bls. 11.
10 mín.: „Trúfesti þeirra er til fyrirmyndar.“ Ræða og nokkrar frásögur, sem komið hafa út á prenti, af sérbrautryðjendum eða viðtöl við sérbrautryðjendur í söfnuðinum ef einhverjir eru. — Sjá efnisskrána Watch Tower Publications Index undir „Special Pioneers“.
20 mín.: Verum staðföst og óbifanleg. (1. Kor. 15:58) Takið viðtal við tvo eða þrjá boðbera eða brautryðjendur sem hafa þjónað trúfastlega í mörg ár. Hvernig kynntust þeir sannleikanum? Hvernig var boðunarstarfinu háttað þegar þeir byrjuðu að taka þátt í því? Hvaða áskorunum hafa þeir staðið frammi fyrir? Hvaða blessun hafa þeir hlotið fyrir að vera staðfastir í trúnni?
Söngur 12 og lokabæn.
Vikan sem hefst 31. júlí
Söngur 28
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila skýrslum um starfið í júlí. Nefnið ritatilboðið í ágúst.
20 mín.: Verum sveigjanleg og úrræðagóð í boðunarstarfinu. Ræða og umræður við áheyrendur byggð á Varðturninum 1. janúar 2006, bls. 28-30. Byrjið á ræðu, sem byggist á gr. 6-11, og bendið á hvernig Páll var athugull, sveigjanlegur og úrræðagóður boðberi og kennari. Biðjið síðan áheyrendur um að svara spurningunum við gr. 12-14 og heimfæra efnið upp á aðstæður á svæðinu. Hafið sýnikennslu þar sem boðberar laga kynningar sínar að þörfum, aðstæðum og menningarlegum bakgrunni fólksins á safnaðarsvæðinu.
20 mín.: „Góðar venjur hafa blessun í för með sér.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá hvað þeir hafa lagt á sig til að koma á og viðhalda góðum andlegum venjum og hvaða blessun þeir hafa hlotið fyrir vikið.
Söngur 130 og lokabæn.
Vikan sem hefst 7. ágúst
Þjónustusamkoman fellur niður vegna landsmótsins 2006, „Lausnin er í nánd“, sem haldið er dagana 11.-13. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Seinna í haust verður dagskrárliður með upprifjun á landsmótinu. Til að allir séu vel undirbúnir og geti tekið þátt í umræðunum er gott að punkta hjá sér tillögur sem koma fram á mótinu og við ætlum okkur að nota annaðhvort í daglegu lífi okkar eða í boðunarstarfinu. Boðberar fá þá tækifæri til að tjá sig um hvernig þeir hafa notað það sem þeir lærðu á mótinu og hvernig það hefur gert boðunarstarfið áhrifameira.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.