Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 8. maí
Söngur 2
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín.: „Upprifjun svæðismótsins“ — fyrri hluti. Í umsjón öldungs. Umræður með þátttöku áheyrenda byggðar á samnefndri grein í Ríkisþjónustu okkar í ágúst 2005, bls. 5. Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og fjallið síðan um dagskrá laugardagsins. Notið spurningarnar í greininni. Gætið þess að tími gefist til að ræða um allar spurningarnar, til dæmis með því að leyfa ekki nema eitt svar við sumum þeirra. Í næstu viku verður farið yfir dagskrá sunnudagsins.
20 mín.: „Fylgjum Jesú Kristi.“* Eigið stutt viðtal við boðbera sem leggur sig fram um að lifa einföldu lífi og takmarkar tímann sem hann notar við persónuleg hugðarefni til að geta gert meira í þjónustunni öðrum til gagns. Bendið á hvaða blessun það hefur veitt honum.
Söngur 91 og lokabæn.
Vikan sem hefst 15. maí
Söngur 9
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Hvetjið alla til að horfa á myndina um Nóa (Noah — He Walked With God) til að undirbúa sig fyrir dagskrárliðin á þjónustusamkomu í vikunni sem hefst 29. maí.
10 mín.: Vinnum saman í einingu undir forystu Krists. Ræða byggð á efni í bókinni Söfnuður sem er skipulagður til að gera vilja Jehóva, kafla 2, undir millifyrirsögninni „Að virða hlutverk hans“ á bls. 4 í viðaukanum.
15 mín.: „Upprifjun svæðismótsins“ — síðari hluti. Í umsjón öldungs. Umræður með þátttöku áheyrenda byggðar á samnefndri grein í Ríkisþjónustu okkar í ágúst 2005, bls. 5. Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og fjallið síðan um dagskrá sunnudagsins. Notið spurningarnar í greininni. Gætið þess að tími gefist til að ræða um allar spurningarnar, til dæmis með því að leyfa ekki nema eitt svar við sumum þeirra.
15 mín.: Íhugið athafnir Jehóva. (Sálm. 77:13) Ræða og umræður við áheyrendur byggð á árbókinni 2006. Ræðið það helsta í „Bréfi frá hinu stjórnandi ráði“ í Ríkisþjónustu okkar í mars 2006, bls. 3-4, en þetta er þýðing á bréfinu í árbókinni. Farið nokkrum orðum um biblíuþýðingar sem sagt er frá á bls. 10-11. Endursegið nokkrar frásögur og nefnið annað sem stendur upp úr á nýliðnu þjónustuári og sagt er frá á bls. 6-64. Biðjið áheyrendur að segja frá áhugaverðum atriðum í árbókinni. Hvetjið alla til að íhuga efnið í árbókinni en það strykir trú okkar. Það má líka nota hana til að byggja upp traust biblíunemenda til safnaðar Jehóva.
Söngur 133 og lokabæn.
Vikan sem hefst 22. maí
Söngur 86
12 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 8 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig fjölskylda býr sig undir starfið og æfir hvernig bjóða má Varðturninn 1. júní og Vaknið! apríl - júní.
15 mín.: „Sýnum persónulegan áhuga með því að vera vingjarnleg og kurteis.“* Farið nokkrum orðum um greinina „Hvað áttu að segja við símsvara?“ á bls. 2 í Ríkisþjónustu okkar í nóvember 2000 um leið og farið er yfir grein 4.
18 mín.: Snyrtilegt útlit. Umræður við áheyrendur um efnið á bls. 131-33 í Boðunarskólabókinni. Ræðið meginreglurnar fimm í bókinni sem snúa að útliti og snyrtimennsku. Takið fram að við getum notað þetta efni til að benda biblíunemendum á hvernig er viðeigandi að vera til fara á samkomum.
Söngur 215 og lokabæn.
Vikan sem hefst 29. maí
Söngur 42
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila skýrslum um starfið í maí.
10 mín.: Bjóðum Kennarabókina í júní. Notið dæmin á bls. 3-4 í Ríkisþjónustu okkar í janúar 2005 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Lærum af kennaranum mikla. Biðjið áheyrendur um að segja frá hvernig það hefur reynst þeim vel að nota bókina í boðunarstarfinu eða í fjölskyldunni.
25 mín.: „Fyrirmynd fyrir fólk á öllum aldri.“ Hafið inngangsorðin styttri en mínútu og farið síðan beint í spurningarnar um myndina um Nóa. Notið allar spurningarnar í annarri efnisgreininni. Spyrjið fjölskyldur að lokum hvernig það hefur reynst gagnlegt að leysa námsverkefnin sem er að finna á mynddisknum. Fjallið að lokum um spurninguna og ritningarstaðina í þriðju efnisgreininni.
Söngur 9 og lokabæn.
Vikan sem hefst 5. júní
Söngur 176
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: „Vottar Jehóva boða fagnaðarerindið af kostgæfni.“* Bjóðið boðberum að segja frá ánægjulegum atburðum sem hafa átt sér stað með aukinni starfsemi á vormánuðum.
20 mín.: Að ná árangri í endurheimsóknum. Umræður við áheyrendur byggðar á rammagreininni á bls. 16 í Varðturninum 1. mars 2004. Farið yfir tillögurnar sjö lið fyrir lið og biðjið áheyrendur um að segja hvernig hægt væri að nota þær á svæðinu. Hvetjið boðbera til að heimsækja aftur alla þá sem þiggja rit eða sýna áhuga með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið. Notið eina af tillögunum á bls. 6 í Ríkisþjónustu okkar í janúar 2006 og sýnið hvernig hægt er að bjóða biblíunámskeið í endurheimsókn.
Söngur 57 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.