Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.06 bls. 5
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2006
Ríkisþjónusta okkar – 2006
km 3.06 bls. 5

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í mars: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða einhverja aðra samkomu eða mót, en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Reynið í framhaldinu að bjóða Hvað kennir Biblían? með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið. Júní: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi segist ekki eiga nein börn má bjóða Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt.

◼ Þar sem fimm helgar eru í apríl væri kjörið að nota mánuðinn til aðstoðarbrautryðjandastarfs.

◼ Afgreiða ætti ný blöð jafnskjótt og þau berast. Boðberar geta þá kynnt sér efni þeirra áður en þeir bjóða þau í boðunarstarfinu. Einnig ætti að afhenda boðberum Ríkisþjónustu okkar um leið og hún berst. Það er hægt að gera í bóknáminu.

◼ Deildarskrifstofan afgreiðir ekki ritabeiðnir einstakra boðbera beint. Umsjónarmaður í forsæti ætti að láta lesa upp tilkynningu í hverjum mánuði áður en mánaðarleg ritapöntun safnaðarins er send til deildarskrifstofunnar svo að allir sem vilja geti pantað rit hjá bókaþjóninum. Vinsamlegast hafið í huga hvaða rit eru sérpöntunarvara.

◼ Ef boðberar hafa í hyggju að sækja samkomur eða mót á erlendri grund ættu þeir að beina fyrirspurnum um stund og stað til deildarskrifstofu viðkomandi lands. Póstfangaskrá er að finna á öftustu síðu nýjustu árbókarinnar.

◼ Svæðismótið fyrir þjónustuárið 2006 verður haldið í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi dagana 30. og 31. apríl og hefst dagskráin klukkan 9:40 báða dagana. Stef mótsins er: „Íklæðist hinum nýja manni“ og er byggt á Kólossubréfinu 3:10.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila