Bréf frá hinu stjórnandi ráði
„Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.“ Páll notaði þessa kveðju í mörgum af bréfum sínum til safnaðanna. Þessi orð lýsa því vel sem við viljum segja við ykkur. — Ef. 1:2.
Við erum öll innilega þakklát fyrir óverðskuldaða náð Jehóva sem birtist í lausnarfórn Jesú Krists. Vegna lausnarfórnarinnar getum við haft velþóknun Guðs sem við gætum aldrei áunnið okkur sjálf, sama hversu iðin við erum við að lesa Biblíuna, boða fagnaðarerindið eða vinna önnur góðverk. Fyrirgefning synda og eilíft líf eru ekki laun sem við fáum fyrir starf okkar heldur gjafir sem endurspegla óverðskuldaða náð Jehóva fyrir milligöngu Jesú Krists. — Rómv. 11:6.
Páll skrifaði trúbræðrum sínum: „Vér [áminnum] yður einnig, að þér látið ekki náð Guðs, sem þér hafið þegið, verða til einskis. Hann segir: Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á hjálpræðis degi hjálpaði ég þér. Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðis dagur.“ Fyrir eyðingu Jerúsalem á fyrstu öldinni var „hagkvæm tíð“. Hjartahreinum mönnum, sem elskuðu Jehóva, var bjargað úr andlegu myrkri. Þetta varð að lokum til þess að trúfast fólk, sem flúði úr Jerúsalem fyrir eyðinguna árið 70, hlaut bókstaflega björgun. — 2. Kor. 6:1, 2.
Núna er líka „hagkvæm tíð“ og „hjálpræðis dagur“. Þeir sem Jehóva viðurkennir sem þjóna sína og er bjargað úr andlegu myrkri eiga von um bókstaflega björgun á hinum mikla degi Jehóva sem er svo nálægur. — Sef. 1:14.
Dagur Jehóva er skammt undan og því hvílir mikil ábyrgð á okkur. Við þurfum bæði að vara aðra við og hjálpa hjartahreinu fólki að njóta góðs af óverðskuldaðri náð Jehóva svo að það geti líka bjargast. Páll gerði sér grein fyrir því hve alvarleg ábyrgð þetta væri. Hann skrifaði: „Vei mér, ef ég boðaði ekki fagnaðarerindið.“ Hann útskýrði einnig hvernig honum leið þegar hann sagði: „Ég er í skuld bæði við Grikki og útlendinga, vitra og fávísa. Svo er ég og fyrir mitt leyti fús til að boða fagnaðarerindið.“ — 1. Kor. 9:16; Rómv. 1:14, 15.
Jehóva kallar okkur til ábyrgðar ef við sinnum ekki því mikilvæga starfi að vara fólk við. Við munum hvað Jehóva sagði við Esekíel spámann: „Mannsson, ég hefi skipað þig varðmann yfir Ísrael. Þegar þú heyrir orð af mínum munni, skalt þú vara þá við í mínu nafni. Ef ég segi við hinn óguðlega: ‚Þú skalt deyja!‘ og þú varar hann ekki við og segir ekkert til þess að vara hinn óguðlega við óguðlegri breytni hans, til þess að bjarga lífi hans, þá mun hinn óguðlegi að vísu deyja fyrir misgjörð sína, en blóðs hans mun ég krefja af þinni hendi.“ — Esek. 3:17, 18.
Þessir síðustu dagar eru erfiðir. Það er ekki auðvelt að finna jafnvægið á milli þess að sinna fjölskyldunni, atvinnunni, safnaðarstörfum og boðunarstarfinu. Auk þess þurfa mörg ykkar að glíma við veikindi, þunglyndi eða elli og sumir mæta jafnvel andstöðu. Flest berið þið „þungar byrðar“. Við viljum sýna sömu hluttekningu og Jesús þegar hann sagði: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt. 11:28) Við hrósum ykkur öllum innilega fyrir að halda áfram að þjóna Jehóva trúfastlega þrátt fyrir prófraunir, smáar sem stórar.
Að meðaltali láta 4.762 skírast í hverri viku um heim allan en það er bæði blessun Jehóva að þakka og árangur af ötulu prédikunar- og kennslustarfi ykkar. Á síðasta þjónustuári voru 1.375 nýir söfnuðir myndaðir. Við vonum innilega og biðjum þess að nýja bókin Hvað kennir Biblían?, sem er nú þegar fáanleg á rúmlega 120 tungumálum, hjálpi milljónum til viðbótar að njóta góðs af óverðskuldaðri náð Jehóva núna á „hjálpræðis degi“ hans.
Þið megið vera fullviss um að við berum umhyggju fyrir ykkur og minnumst ykkar í bænum okkar. Við þökkum ykkur líka fyrir að biðja fyrir okkur.
Bræður ykkar,
Stjórnandi ráð Votta Jehóva