Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 13. júní
Söngur 198
10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið tillöguna neðst á bls. 8.
15 mín.: Aðstoðið aðra að verða óskírðir boðberar. Ræða og umræður við áheyrendur í umsjón öldungs byggt á Organized to Do Jehovah’s Will (Söfnuður skipulagður til að gera vilja Jehóva), bls. 79-81. Ræðið hvernig hægt er að kanna hvort biblíunemandi uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem taka þátt í boðunarstarfi safnaðarins. Í næstu viku ræðum við hvernig hægt er að aðstoða biblíunemendur, sem eru hæfir til að vera óskírðir boðberar, við að taka þátt í starfinu hús úr húsi.
20 mín.: „Prédikunarstarfið hjálpar okkur að vera staðföst“a Biðjið áheyrendur að skýra ritningarstaði, sem vísað er til, eftir því sem tími leyfir.
Söngur 149 og lokabæn.
Vikan sem hefst 20. júní
Söngur 206
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Rifjið upp aðalatriðin úr greininni í Ríkisþjónustu okkar í júlí 2003, bls. 4. Útskýrið hvernig boðberar geta fengið rit á erlendum málum. Ræðið hvernig þessar leiðbeiningar eiga við svæði safnaðarins. Pantanir á erlendum ritum á að gera í ritaafgreiðslunni. Það á líka við ef um einstaka rit er að ræða. Þá er hægt að panta nauðsynleg rit án tafar.
15 mín.: Orð Guðs er lifandi og kröftugt. (Hebr. 4:12) Ræða byggð á Varðturninum 1. mars 2004, bls. 11, gr. 13-17. Endursegið frásögur af því hvernig kennsla frá Biblíunni hefur hvatt fólk til að gera breytingar í lífi sínu. (w00 1.1. bls. 3-5) Hvetjið alla til að nota Biblíuna vel í öllum greinum þjónustunnar.
20 mín.: „Árangursrík biblíunámskeið — 10. hluti.“b Sviðsetjið hvernig boðberi þjálfar biblíunemanda. Biblíunemandinn æfir kynningu og boðberinn, sem leikur húsráðandann, kemur með algenga mótbáru. Þegar biblíunemandinn er ekki viss um hverju skuli svara gefur boðberinn ráð um hvað sé hægt að segja. Biðjið þar að auki einn eða tvo um að segja frá hvaða þjálfun þeir fengu þegar þeir byrjuðu að starfa hús úr húsi.
Söngur 208 og lokabæn.
Vikan sem hefst 27. júní
Söngur 113
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila skýrslum fyrir júní. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 8 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. júlí og Vaknið! júlí-september. Eftir kynninguna er gott að endurtaka inngangsorðin sem voru notuð til að vekja áhuga húsráðanda.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
20 mín: Bjóðum bæklinga í júlí og ágúst. Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á viðaukanum. Skýrið í stuttu máli hvernig á að nota viðaukann og beinið athyglinni að rammanum á bls. 3 ásamt meginatriðum greinarinnar á bls. 8 í Ríkisþjónustu okkar í janúar 2005. Fjallið um tillögur sem henta vel á safnaðarsvæðinu til að bjóða bæklinga í fyrstu heimsókn. Sviðsetjið tvær eða þrjár tillögur og fáið ungan boðbera til að sjá um að minnsta kosti eina þeirra.
Söngur 196 og lokabæn.
Vikan sem hefst 4. júlí
Söngur 70
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Hefur fjölskyldan stundarskrá? Rifjið upp tillögurnar í viðauka Ríkisþjónustu okkar í maí 2005. Biðjið áheyrendur um að segja frá hvernig þeir hafa farið eftir ráðleggingunum og hvernig það hefur gagnast þeim.
20 mín.: „Að vitna á almannafæri.“c Heimfærið efnið á aðstæður á svæðinu. Minnið boðbera á að láta vita af áhugasömu fólki sem býr fyrir utan safnaðarsvæðið eða talar erlent tungumál. — Sjá Ríkisþjónustu okkar í febrúar 2005, bls. 7.
Söngur 120 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
c Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.