Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 9. maí
Söngur 217
10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið tillöguna neðst á bls. 8.
15 mín.: Notið orð Guðs til að ná til hjartans. Ræða byggð á Varðturninum á ensku 1. febrúar 2005, bls. 28-31. Skoðið hvernig Jesús notaði Ritninguna til að hjálpa Pétri. Ræðið hvernig við getum líkt eftir Kristi þegar nauðsynlegt er að leiðrétta hugsunarhátt og skoðanir barna okkar, biblíunemenda eða sjálfra okkar.
20 mín.: „Búið til hentuga dagskrá fyrir fjölskylduna.“ Hafið inngangsorðin skemmri en tvær mínútur og bendið á gildi þess að hafa útskrifaða dagskrá og fjallið um hvernig hægt sé að fylla út auðu dagskrána á bls. 6. Farið síðan yfir greinina „Dagskrá fjölskyldunnar — safnaðarsamkomur.“ með spurningum og svörum. Biðjið áheyrendur um að segja frá hvernig þeim hefur tekist að koma í veg fyrir að önnur viðfangsefni trufli samkomusókn. Farið verður yfir fleiri þætti dagskrár fjölskyldunnar á næstu vikum.
Söngur 176 og lokabæn.
Vikan sem hefst 16. maí
Söngur 201
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: „Dagskrá fjölskyldunnar — boðunarstarfið.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá hvernig fjölskyldan njóti góðs af því að taka reglulega þátt í boðunarstarfinu saman.
20 mín.: „Árangursrík biblíunámskeið — 9. hluti.“* Þegar farið er yfir grein 2 takið þá með eitt eða tvö atriði úr Ríkisþjónustu okkar í desember 2004, bls. 6. Sviðsetjið stutt dæmi um biblíunámskeið. Eftir að hafa lokið kafla 2 í Kröfubæklingnum spyr boðberinn: „Hvernig myndir þú útskýra fyrir vini hvert nafn Guðs er?“ Nemandinn sýnir hvernig hann myndi nota Sálm 83:19 og boðberinn hrósar honum fyrir.
Söngur 134 og lokabæn.
Vikan sem hefst 23. maí
Söngur 194
12 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Notið tillögurnar á bls. 8 eða aðrar tillögur og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. júní og Vaknið! apríl-júní. Á næstu og þar næstu þjónustusamkomu verður dagskrá svæðismótsins rifjuð upp með þátttöku áheyrenda. Hvetjið alla til að undirbúa sig fyrir upprifjunina með því að fara yfir minnispunkta sína frá mótinu með hliðsjón af spurningunum á bls. 5 í Ríkisþjónustu okkar í ágúst 2004.
18 mín.: „Dagur Jehóva er nálægur.“* Notið Spádóm Daníelsbókar, bls. 59, gr. 28, við undirbúning þessa dagskrárliðar.
15 mín.: „Dagskrá fjölskyldunnar — fjölskyldunámið.“* Biðjið einn eða tvo boðbera fyrir fram um að segja frá hvaða áætlun þeir hafi fyrir fjölskyldunámið og hvað þurfi til að hafa það reglulegt.
Söngur 152 og lokabæn.
Vikan sem hefst 30. maí
Söngur 190
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila skýrslum fyrir maí. Nefnið ritatilboðið í júní. Notið eina eða tvær af kynningunum í viðauka Ríkisþjónustu okkar í janúar 2005 og sýnið hvernig hægt er að bjóða bókina. Einnig má nota aðrar viðeigandi kynningar.
20 mín.: „Dagskrá fjölskyldunnar — dagstextinn.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá hvaða gagn fjölskyldan hefur haft af því að fara yfir dagstextann saman og hvaða dagskrá hafi hentað þeim vel.
15 mín.: „Upprifjun svæðismótsins“ — fyrri hluti. Í umsjón öldungs. Umræður með þátttöku áheyrenda byggðar á samnefndri grein í Ríkisþjónustu okkar í ágúst 2004, bls. 5. Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og fjallið síðan um dagskrá laugardagsins með hjálp spurninganna í greininni. Gætið þess að tími gefist til að ræða um allar spurningarnar, til dæmis með því að leyfa ekki nema eitt svar við sumum þeirra. Ekki er hægt að lesa alla ritningarstaðina sem vísað er til. Boðberar geta hins vegar notað þá til að auðvelda sér að finna svörin en þau ættu að draga fram gagnið af því efni sem fram kom á mótinu. Í næstu viku verður farið yfir dagskrá sunnudagsins.
Söngur 115 og lokabæn.
Vikan sem hefst 6. júní
Söngur 155
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: „Upprifjun svæðismótsins“ — síðari hluti. Í umsjón öldungs. Umræður með þátttöku áheyrenda byggðar á samnefndri grein í Ríkisþjónustu okkar í ágúst 2004, bls. 5. Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og fjallið síðan um dagskrá sunnudagsins með hjálp spurninganna í greininni. Gætið þess að tími gefist til að ræða um allar spurningarnar, til dæmis með því að leyfa ekki nema eitt svar við sumum þeirra. Ekki er hægt að lesa alla ritningarstaðina sem vísað er til. Boðberar geta hins vegar notað þá til að auðvelda sér að finna svörin en þau ættu að draga fram gagnið af því efni sem fram kom á mótinu.
20 mín.: „Notaðu blaðaleið til að örva áhuga fólks.“* Þegar farið er yfir gr. 3 skal beina athyglinni að Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni) bls. 227-32. Þar er að finna efni um það hverju ríki Guðs mun koma til leiðar. Hægt er að fjalla um einn ritningarstað í hverri heimsókn. Sviðsetjið samræður boðbera við húsráðanda á blaðaleið um einn ritningarstað. Boðberinn ætti að ræða um og skýra ritningarstaðinn svo að húsráðandi skilji hann rétt og sjái hvernig hann getur gagnast honum í lífinu.
Söngur 107 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.