Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 14. mars
Söngur 132
10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að sjá myndina David — He Trusted in God (Davíð teysti á Guð) til að geta verið vel undirbúnir fyrir umræðurnar á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 4. apríl. Sviðsetjið tillögu um hvernig hægt er að bjóða áhugasömum á minningarhátíðina. Notið annaðhvort baksíðuna á Varðturninum 1. mars eða boðsmiðana.
20 mín.: „Meiri áhersla á Biblíuna!“*
15 mín.: Gjöf sem styrkir okkur. Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og stýrið síðan umræðum við áheyrendur um árbókina 2005. Að ígrunda stórvirki Jehóva á okkar dögum dregur okkur nær honum og við bindumst trúsystkinum okkar um allan heim sterkari böndum. (Sálm. 77:12-15) Það styrkir okkur til að ,standa gegn djöflinum stöðug í trúnni‘. (1. Pét. 5:8, 9) Og nýir læra betur að meta söfnuð Jehóva. Biðjið áheyrendur að segja frá því sem þeir kunna að meta í árbókinni. Biðjið einn eða tvo fyrir fram að segja frá hvernig þeir taka reglulega frá tíma til að lesa árbókina.
Söngur 137 og lokabæn.
Vikan sem hefst 21. mars
Söngur 140
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: „Árangursrík biblíunámskeið — 7. hluti.“* Farið yfir Varðturninn 1. ágúst 2002 bls. 30, gr. 5-6 við undirbúning dagskrárliðarins.
20 mín.: Hvað er Harmagedón? Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir bls. 44-49 í Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni) með spurningum og svörum. Biðjið áheyrendur um að nota ritningarstaðina sem vitnað er til og svara feitletruðu spurningunum í kaflanum. Ræðið um hvernig hægt er að nota þetta efni í boðunarstarfinu.
Söngur 109 og lokabæn.
Vikan sem hefst 28. mars
Söngur 144
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna og staðfestingu á framlögum sem hafa verið send. Minnið boðbera á að sjá myndina David — He Trusted in God (Davíð teysti á Guð) til að geta verið vel undirbúnir fyrir umræðurnar á þjónustusamkomunni í næstu viku. Hvetjið boðbera til að bjóða áhugasömum á sérræðuna 10. apríl. Nefnið ritatilboðið í apríl og maí.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
20 mín.: Bjóðið Varðturninn og Vaknið! Farið yfir tillögurnar í Ríkisþjónustu okkar í febrúar 2005, bls. 8, um hvernig hægt er að auka blaðadreifinguna. Ræðið um áhugaverð atriði í blöðunum sem við notum núna. Notið tillögurnar á bls. 6 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. apríl og Vaknið! apríl-júní. Einnig er hægt að nota aðrar tillögur. Útskýrið í hverri kynningu hvernig starfsemi okkar er fjármögnuð. — Sjá bls. 2 í Varðturninum eða bls. 5 í Vaknið!
Söngur 116 og lokabæn.
Vikan sem hefst 4. apríl
Söngur 119
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Berið elsku hver til annars. (Jóh. 13:35) Ræða öldungs byggð á Varðturninum 1. apríl 2003, bls. 24-27, gr. 10-21. Eins og kemur fram í lýsingunni á ritatilboðinu fyrir apríl og maí viljum við reyna að hefja biblíunámskeið hjá þeim sem þegar hafa farið yfir Þekkingarbókina og Kröfubæklinginn. Bendið á hvernig boðberar geta unnið að því í samvinnu við öldungana að aðstoða þá sem eru óstyrkir.
25 mín.: „Mynd með sígildan boðskap“ Lesið Sálm 91:2 og 31:15 og bætið stuttum skýringum við bæði versin. Farið síðan beint yfir í spurningarnar við myndina um Davíð. Notið allar spurningarnar í annarri efnisgreininni sem og spurninguna sem borin er upp í þriðju efnisgreininni. Spyrjið fjölskyldur að lokum hvernig það hefur reynst gagnlegt að leysa námsverkefnin sem er að finna á mynddisknum. Lesið síðan Sálm 56:12.
Söngur 36 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.