Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 13. september
Söngur 43
12 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 4.
15 mín.: „Haltu auga þínu heilu.“a Notið námsspurningarnar. Leggið áherslu á ritningarstaðina, sem vísað er til, eftir því sem tími leyfir.
18 mín.: Fólk sér góð verk okkar. (1. Pét. 2:12) Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á Varðturninum 1. janúar 2003, bls. 26-27, gr. 14-20. Bjóðið áheyrendum að segja frá því hvaða áhrif það hefur haft á fólkið á svæðinu að sjá góð verk okkar.
Söngur 162 og lokabæn.
Vikan sem hefst 20. september
Söngur 88
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir aðalatriði bréfsins frá deildarskrifstofunni sem er á framhlið Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að lesa 4. Mósebók 16:1-35 og horfa síðan á myndbandið Respect Jehovah’s Authority (Virðum yfirvald Jehóva) sem rætt verður um á þjónustusamkomu í vikunni sem hefst 4. október.
15 mín.: Hvernig stóðum við okkur á síðasta þjónustuári? Ræða í umsjón öldungs byggð á þjónustuskýrslu safnaðarins fyrir þjónustuárið 2004. Beinið athyglinni að því jákvæða í skýrslunni og hrósið söfnuðinum fyrir það sem áorkað hefur verið. Bendið á það mikla starf sem brautryðjendur hafa unnið. Nefnið eitt eða tvennt sem söfnuðurinn getur lagt áherslu á á næsta þjónustuári.
20 mín.: Höldum áfram að gera gott. (Gal. 6:10) Takið tali tvo eða þrjá reglulega brautryðjendur eða þá sem eru aðstoðarbrautryðjendur öðru hvoru. Hvaða hindranir hafa orðið á vegi þeirra í þjónustunni við Jehóva og hvernig hafa þeir yfirstigið þær? Hvað hefur hjálpað þeim að halda áfram að gera öðrum gott? Hvernig hefur boðunarstarfið verið þeim og öðrum til góðs? Ef við á skal segja frá því hvað gert hefur verið á svæðinu til að boða fagnaðarerindið þeim sem tala annað tungumál. Hrósið öllum fyrir ‚starf þeirra í trúnni, erfiði þeirra í kærleikanum og stöðuglyndi‘. — 1. Þess. 1:2, 3.
Söngur 103 og lokabæn.
Vikan sem hefst 27. september
Söngur 221
15 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Minnið boðbera á að skila starfsskýrslum fyrir september. Notið tillögurnar á bls. 4 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. október og Vaknið! október-desember.
10 mín.: Orð Jehóva er lifandi. Ræða. Greinar í greinaröðinni „Orð Jehóva er lifandi“ birtast nú í sumum tölublöðum Varðturnsins. Við höfum meira gagn af vikulegum biblíulestri Boðunarskólans ef við lesum þær. Bentu á hvað einkennir greinarnar og notaðu til þess Varðturninn fyrir 1. október. Eftir stutt yfirlit er millifyrirsögnin „Biblíuspurningar og svör“ þar sem erfið biblíuvers eru útskýrð. Undir millifyrirsögninni „Lærdómur“ er bent á hagnýtt gildi efnisins. Takið nokkur dæmi til að sýna hvernig þessi greinaröð á eftir að hjálpa okkur að öðlast meiri skilning á orði Guðs. Hvetjið alla til að nýta sér þessar greinar þegar við byrjum að lesa 5. Mósebók í næstu viku.
20 mín.: „Notaðu Biblíuna sem oftast.“b Notið námsspurningarnar. Byggið inngangsorðin á efninu í Boðunarskólabókinni, bls. 145, gr. 2-3. Sviðsetjið tvö stutt sýnidæmi og notið tillögurnar í greininni. Það fyrra er fyrsta heimsókn og það síðara endurheimsókn.
Söngur 38 og lokabæn.
Vikan sem hefst 4. október
Söngur 5
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
25 mín.: „Við verðum að virða yfirvald Jehóva.“ Lesið Júdasarbréf vers 11. Inngangsorðin skulu ekki vera lengri en tvær mínútur. Byrjið síðan strax á að ræða við áheyrendur með því að fara yfir allar spurningarnar í greininni. Bendið á að til að þóknast Jehóva verðum við að forðast uppreisnaranda Kóra og líkja eftir sonum hans sem létu ekkert koma í veg fyrir að þeir sýndu Jehóva hollustu.
Söngur 99 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.