Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 9. ágúst
Söngur 57
10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 8. Minnið áheyrendur á að hafa Kröfubæklinginn meðferðis í næstu viku.
15 mín.: „Umbun fyrir þrautseigju.“a Takið með efni úr Varðturninum 1. desember 2000, bls. 27-8, gr. 15-18.
20 mín.: Að nota smárit til að hefja biblíunámskeið. Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á Ríkisþjónustu okkar fyrir desember 2001, bls. 3-4. Leggið áherslu á að við erum fús til að laga okkur að aðstæðum hvers nemanda eins og fram kemur í gr. 5. Sviðsetjið eitt eða tvö stutt sýnidæmi byggð á gr. 8-10. Ef önnur aðferð hefur reynst vel á svæðinu skal í staðinn útskýra hana og sviðsetja. Bjóðið áheyrendum að segja frá hvernig þeim hefur gengið að nota smáritið Langar þig að vita meira um Biblíuna?
Söngur 74 og lokabæn.
Vikan sem hefst 16. ágúst
Söngur 189
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Brýndu sannleikann fyrir börnum þínum. Ræða byggð á bókinni The Secret of Family Happiness (Fjölskylduhamingjubókinni), bls. 55-9. Ræðið á hvaða fjóra vegu foreldrar geta hjálpað börnunum að mynda náið samband við Jehóva og heimfærið efnið upp á aðstæður.
20 mín.: „Árangursrík biblíunámskeið — 2. hluti.“b Sviðsetjið fimm mínútna sýnikennslu. Boðberi spyr öldung hvernig hann eigi að hjálpa biblíunemanda að taka framförum. Öldungurinn bendir á að það séu algeng mistök að eyða of miklum tíma í að fara út í smáatriði og aukaatriði í námsstundinni. Hann notar 9. kaflann í Kröfubæklingnum til að sýna boðberanum hvernig eigi að (1) einbeita sér að aðalatriðum efnisins, (2) nota ritningarstaði, sem vísað er til, á áhrifaríkan hátt og (3) sníða kennsluna að þörfum nemandans. Hann tekur líka fram að mikilvægt sé að undirbúa sig vel fyrir hverja námsstund.
Söngur 85 og lokabæn.
Vikan sem hefst 23. ágúst
Söngur 33
15 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Notið tillögurnar á bls. 8 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. september og Vaknið! júlí-september. Í annarri kynningunni skal vitna fyrir skólakennara.
10 mín.: „Nýtt fyrirkomulag á upprifjun mótanna.“ Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á greininni á bls. 4. Minnið á hvenær sérstaki mótsdagurinn og næsta svæðismót verður haldið, ef það liggur fyrir að svo stöddu. Þeir sem hafa hug á að láta skírast ættu að láta umsjónarmann í forsæti vita með góðum fyrirvara.
20 mín.: Bjóðum fólki Skaparabókina í september. Ræða og sýnikennsla. Nefnið hvað sumir hafa sagt um bókina. (wE99 15.6. bls. 25-6) Segið stuttlega frá innihaldi bókarinnar og leggið áherslu á ákveðin atriði sem gætu höfðað til fólks á svæðinu. (km 2.01 bls. 7, km 4.99 bls. 2, km 9.99 bls. 2) Nefndu einfalda kynningu sem inniheldur ritningarstað og inngangsorð úr Ríkisþjónustu okkar eða smábæklingnum Hvernig hefja má biblíusamræður og halda þeim áfram. Í kynningunni skal einnig bent á ákveðið atriði eða kafla úr Skaparabókinni. Látið hæfan boðbera sviðsetja sýnikennsluna.
Söngur 220 og lokabæn.
Vikan sem hefst 30. ágúst
Söngur 90
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila starfsskýrslum fyrir ágúst.
15 mín.: „Þjónustuþjálfunarskólinn — víðar dyr og verkmiklar.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Takið með efni úr árbókinni 2004, bls. 239-40. Þeir sem hafa áhuga á að sækja skólann og vilja nánari upplýsingar um hann eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við farandhirðinn.
20 mín.: Hefurðu haft gagn af því? Umræður við áheyrendur. Farið yfir tillögurnar sem birtust í Ríkisþjónustu okkar á síðasta þjónustuári: Skrifaðu kynninguna niður á miða. (km 10.03 bls. 8) Hrósaðu öðrum persónulega og í einlægni fyrir eitthvað ákveðið. (km 11.03 bls. 1) Farðu í boðunarstarfið þegar mestar líkur eru á að fólk sé heima. (km 12.03 bls. 1) Taktu frá ákveðinn tíma fyrir biblíulestur, boðunarstarfið og undirbúning fyrir samkomur. (km 1.04 bls. 4) Notaðu bæklinginn „See the Good Land“ (Sjáðu landið góða) við einkanám og biblíulestur. (km 3.04 bls. 2) Settu þér það markmið að lesa alla Biblíuna. (km 4.04 bls. 1) Starfaðu á viðskiptasvæði. (km 7.04 bls. 4) Notaðu smárit til að hefja biblíunámskeið. (km 8.04 bls. 2) Bjóðið áheyrendum að tjá sig um hvaða gagn þeir hafi haft af því að fara eftir þessum leiðbeiningum.
Söngur 145 og lokabæn.
Vikan sem hefst 6. september
Söngur 197
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
25 mín.: „Sýnum brautryðjandaanda.“c Takið stuttlega einn eða tvo brautryðjendur tali. Spyrjið þá hvernig fordæmi foreldra, öldunga eða annarra hafi hvatt þá til að verða boðberar í fullu starfi.
Söngur 142 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
c Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.