Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.04 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2004
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 10. maí
  • Vikan sem hefst 17. maí
  • Vikan sem hefst 24. maí
  • Vikan sem hefst 31. maí
  • Vikan sem hefst 7. júní
Ríkisþjónusta okkar – 2004
km 5.04 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 10. maí

Söngur 193

10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 4.

15 mín.: Hefurðu rætt við vinnuveitandann? Ræða öldungs með þátttöku áheyrenda byggð á greininni „Verður þú viðstaddur?“ í Ríkisþjónustu okkar í janúar 2000, bls. 1. Takið með efni úr Boðunarskólabókinni á bls. 67.

20 mín.: ‚Látið verða rúmgott hjá ykkur.‘a Takið með efni úr bókinni Sameinuð í tilbeiðslu á hinum eina sanna Guði, bls. 138, gr. 17.

Söngur 18 og lokabæn.

Vikan sem hefst 17. maí

Söngur 188

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.

15 mín.: „Sýnið þakklæti ykkar.“b Eftir því sem tími leyfir skal biðja áheyrendur að tjá sig um ritningarstaðina sem vísað er til. Þegar farið er yfir grein 3 skal biðja einn eða tvo boðbera að segja frá þeirri blessun sem þeir nutu þegar þeir voru aðstoðarbrautryðjendur nýlega.

20 mín.: Við berum umhyggju hvert fyrir öðru. (1. Kor. 12:25, 26) Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á bókinni Organized To Accomplish Our Ministry (Þjónustubókinni), bls. 157-9 undir millifyrirsögninni „Concern for One Another“ (Berum umhyggju hvert fyrir öðru). Þótt þjónar Jehóva búi um alla jörðina ríkir eining á meðal þeirra. Við ættum öll að biðja daglega fyrir trúbræðrum okkar. Við erum einnig fljót til að veita efnislega hjálp þegar hennar er þörf. Lesið og fjallið um aðalritningarstaðina og endursegið eina eða tvær frásögur úr ritum okkar.

Söngur 100 og lokabæn.

Vikan sem hefst 24. maí

Söngur 128

12 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Notið tillögurnar á bls. 4 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. júní og Vaknið! apríl-júní. Í báðum tilfellum ætti að sýna hvernig bregðast megi við samræðutálmanum „Ég hef mína eigin trú“. — Sjá Biblíusamræðubæklinginn, bls. 10-11.

15 mín.: „Tónlist sem endurnærir.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Takið með efni úr árbókinni árið 2002, bls. 175 og Varðturninum á ensku 1. febrúar 1997, bls. 27, gr. 1-2.

18 mín.: Verið reiðubúin til að vitna óformlega. Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á Ríkisþjónustu okkar í júní 2003, bls. 3. Biðjið nokkra fyrir fram um að segja frá reynslu sinni af því að vitna óformlega. Sýnið stuttlega hvernig hægt er að nota smáritið Langar þig að vita meira um Biblíuna? og bæklinginn Good News for All Nations þegar vitnað er óformlega.

Söngur 211 og lokabæn.

Vikan sem hefst 31. maí

Söngur 26

8 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila starfsskýrslum fyrir maí.

17 mín.: Lífið er dýrmæt gjöf. Umræður við áheyrendur byggðar á Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni), bls. 25-6. Takið með efni úr Vaknið! á ensku 22. maí 1993, bls. 10-11. Hvernig myndirðu útskýra viðhorf Jehóva til fóstureyðinga fyrir einstaklingi sem hefur þá skoðun að kona ráði yfir líkama sínum sjálf? Segið frásöguna sem er í Varðturninum 1. janúar 2000, bls. 4, gr. 4-5.

20 mín.: „Notaðu smárit til að hefja samræður eða bjóða biblíunámskeið.“ Umræður við áheyrendur. Sviðsetjið tillöguna í gr. 4. Takið með efni úr greininni „Hvers vegna smárit eru svona verðmæt í þjónustu okkar núna“ í Ríkisþjónustu okkar í júní 1993 og „Við höfum nýtt hjálpargagn til að hefja biblíunámskeið“ í Ríkisþjónustu okkar í desember 2001. Hvetjið boðbera til að bjóða biblíunámskeið strax í fyrstu heimsókn.

Söngur 24 og lokabæn.

Vikan sem hefst 7. júní

Söngur 136

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir aðalatriðin í rammanum „Leið til að hjálpa þeim“. Nefnið sum af þeim tungumálum sem eru töluð á svæðinu.

15 mín.: Staðbundnar þarfir.

20 mín.: Notið áhrifaríkar líkingar þegar þið kennið. Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á Varðturninum 1. október 2002, bls. 30-32. Hvaða fjórir þættir gera líkingu áhrifaríka? Hvers vegna er kostur að hafa líkingu einfalda? Hvar getum við fundið góðar líkingar? Skoðið nokkur af dæmunum í rammanum á bls. 32 og ræðið hvað gerir hverja líkingu um sig áhrifaríka.

Söngur 133 og lokabæn.

[Neðanmáls]

a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila