Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 8. mars
Söngur 37
10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Minnið alla á að koma með nýja bæklinginn, „See the Good Land“ (Sjáðu landið góða), á þjónustusamkomuna í næstu viku. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 4.
15 mín.: Notum smárit til að hefja samræður. Umræður við áheyrendur. Það erfiðasta við að vitna getur oft verið það að hefja samræður. Hægt er að nota smáritin til að brjóta ísinn þegar vitnað er hús úr húsi, í fyrirtækjum eða á götum úti. Fjallið stuttlega um tvö eða þrjú smárit sem gætu höfðað til fólks á svæðinu. Hvernig er hægt að kynna þessi smárit? Hvernig má nota myndirnar? Hvaða spurningum gætum við varpað fram háttvíslega? Beinið athygli að einni efnisgrein í hverju smáriti sem hægt er að nota ef húsráðandi sýnir áhuga. Sviðsetjið hvernig boðberi hefur samræður með því að nota smárit. Látið hann fara stuttlega yfir eina efnisgrein í smáritinu og ljúka samtalinu á því að bjóða Þekkingarbókina.
20 mín.: „Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu.“a Um leið og farið er yfir grein 3 ætti að bjóða áheyrendum að segja frá því hvernig þeir hafi boðið fólki á minningarhátíðina.
Söngur 131 og lokabæn.
Vikan sem hefst 15. mars
Söngur 121
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Tilkynnið hvenær Varðturnsnámið verður haldið í minningarhátíðarvikunni.
15 mín.: Nýjustu upplýsingar um sérstakt átak vikurnar fyrir og eftir minningarhátíðina. Umræður við áheyrendur í umsjón starfshirðis. Minnist á þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið. Endursegið nokkrar hvetjandi frásögur. Hvetjið þá sem geta til að sækja um aðstoðarbrautryðjandastarf í apríl og maí. Rifjið stuttlega upp nokkur atriði úr viðauka Ríkisþjónustu okkar í febrúar.
20 mín.: Þú getur haft gagn af bæklingnum „See the Good Land“ (Sjáðu landið góða). Nýi bæklingurinn gefur lestri og námi í orði Guðs meira gildi. Lykillinn að því er nafnavísirinn. Lesið Jesaja 63:1 þar sem Jehóva er lýst eins og hann komi frá Bosra. Biðjið alla að finna Bosra, eða Bozrah á ensku, í nafnavísinum. Útskýrið hvað upplýsingarnar „Bozrah 11 G11“ merkja með því að nota rammann á bls. 34 og finnið Bosra og Edóm (Bozrah og Edom) á tilgreindu korti. Finnið leiðina, sem Jesús fór frá Jerúsalem til Síkar (Jerusalem og Sychar), með hjálp nafnavísisins. (Jóh. 4:3-5) Gerið það sama til að finna laugina Betesda (Bethzatha). (Jóh. 5:1-3) Takið eitt eða tvö dæmi til viðbótar úr vikulegum biblíulestri Boðunarskólans. Bjóðið áheyrendum að tjá sig um hvar þessa staði sé að finna í kortabæklingnum og hvernig það getur verið gagnlegt að skoða hann. Beinið stuttlega athyglinni að nokkrum kortum í bæklingnum og nefnið hvaða tímaskeið þau spanna. Á bls. 18-19 í bæklingnum er að finna flesta þá staði sem minnst er á í Biblíunni. Hvetjið alla til að nýta sér kortabæklinginn vel.
Söngur 63 og lokabæn.
Vikan sem hefst 22. mars
Söngur 191
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Minnið alla á biblíulesturinn fyrir minningarhátíðina, 30. mars til 4. apríl. Lestraráætlun er að finna í bæklingnum Rannsökum daglega ritningarnar og á dagatalinu.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
20 mín.: „Áhlaup riddaraliðs sem snertir þig.“b Lesið og ræðið um ritningarstaðina, sem vísað er til, eftir því sem tími leyfir.
Söngur 181 og lokabæn.
Vikan sem hefst 29. mars
Söngur 129
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila starfsskýrslum fyrir mars. Farið nokkrum orðum um ritatilboðið í apríl. Sviðsetjið tillögurnar á bls. 4 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. apríl og Vaknið! apríl-júní.
15 mín.: Nýtið ykkur vel árbókina fyrir 2004. Ræða með þátttöku áheyrenda. Ræðið það helsta í „Bréfi frá hinu stjórnandi ráði“ á bls. 3 en þetta er þýðing á bréfinu í árbókinni. Farið nokkrum orðum um ársskýrsluna og endursegið fáeinar trústyrkjandi frásögur. Hvetjið alla til að lesa bókina á árinu.
20 mín.: Sannleikurinn sameinar fjölskyldur. Ræða með þátttöku áheyrenda. Áhugasamir veigra sér stundum við að þjóna Jehóva vegna andstöðu frá fjölskyldunni. Endursegið einhverjar af eftirfarandi frásögum: Varðturninn 1. janúar 2002, bls. 14-15; Varðturninn á ensku 1. desember 2000, bls. 8; Varðturninn á ensku 1. september 1999, bls. 32; Varðturninn 1. janúar 1999, bls. 4 og Vaknið! júlí-september 1998, bls. 31. Bentu á að oft batnar fjölskyldulífið jafnvel þótt aðeins einn í fjölskyldunni fylgi meginreglum Biblíunnar.
Söngur 130 og lokabæn.
Vikan sem hefst 5. apríl
Söngur 126
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
20 mín.: Hreinlæti er okkur til hróss. Ræða byggð á Varðturninum 1. júlí 2002, bls. 29-30. Sviðsetjið samtal þar sem öldungur sýnir brautryðjanda hvernig hann getur, á nærgætinn hátt, bent biblíunemanda á mikilvægi þess að halda heimilinu hreinu og garðinum snyrtilegum. Hann notar til þess Kröfubæklinginn, 9. kafla, grein 5.
15 mín.: Segið frásögur tengdar minningarhátíðinni og aukinni þátttöku í boðunarstarfinu í mars.
Söngur 25 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.