Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í október: Varðturninn og Vaknið! Þar sem áhuga er að finna má bjóða Kröfubæklinginn með það fyrir augum að hefja nýtt biblíunámskeið. Nóvember: Hvers krefst Guð af okkur? eða Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Ef húsráðandi á þessi rit má bjóða önnur, eldri rit. Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Janúar: Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Einnig má bjóða Er til skapari sem er annt um okkur?
◼ Með þessu tölublaði Ríkisþjónustu okkar fylgir viðauki með „Námsskrá Boðunarskólans 2004“ sem halda á til haga fyrir næsta ár.
◼ Ef samkomutímar safnaða breytast 1. janúar næstkomandi þarf að huga að því að panta nýja boðsmiða sem sýna réttan samkomutíma.
◼ Söfnuðir geta pantað Árbókina 2004 á ritapöntunareyðublaðinu í nóvember. Listi með tungumálum, sem bókin verður fáanleg á, verður birtur í bréfinu „Tilkynning til allra safnaða“ sem er sent út reglulega.