Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 10.03 bls. 7
  • Upprifjun á efni Boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni Boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2003
Ríkisþjónusta okkar – 2003
km 10.03 bls. 7

Upprifjun á efni Boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. október, 2003. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna munnlegri upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 1. september til 27. október, 2003. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐIR

1. Við hvað er átt með leiðbeiningunum í 1. Tímóteusarbréfi 2:9 um að skrýða sig „sæmandi búningi“ og hvaða áhrif ætti það að hafa á útlit okkar þegar við flytjum ræður eða erum í boðunarstarfinu? [be bls. 132 gr. 4-5]

2. Hvaða áhrif ættu meginreglurnar í 1. Jóhannesarbréfi 2:15-17, Efesusbréfinu 2:2 og Rómverjabréfinu 15:3 að hafa á útlit okkar? [be bls. 133 gr. 2-4]

3. Hvers vegna er öryggi og jafnvægi mikilvægt og hvernig getum við tamið okkur það þegar við flytjum ræður og erum í boðunarstarfinu? [be rammar á bls. 135 og 136; bls. 136 gr. 5]

4. Hvernig gaf Jesús, „votturinn trúi og sanni“, okkur fyrirmynd í því að nota Biblíuna í boðunarstarfinu? (Opinb. 3:14) [be bls. 143 gr. 2-3]

5. Hvernig getum við orðið færari í að nota Biblíuna? (Tít. 1:9) [be bls. 144 gr. 1 ásamt ramma]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvað er nám og hvaða gagn höfum við af reglulegu námi í orði Guðs? [be bls. 27 gr. 3; bls. 32 gr. 4]

7. Hvað er nauðsynlegt að gera í samræmi við Jakobsbréfið 1:5, 6 þegar við þurfum að taka mikilvæga ákvörðun? [wE01 1.9. bls. 28 gr. 4]

8. Hvað eru viðmiðunarártöl og hvers vegna hafa þau mikið gildi? [si bls. 282 gr. 27]

9. Að hvaða leyti er sá heimskur „sem ber út óhróður“? (Orðskv. 10:18) [wE01 15.9. bls. 25 gr. 3]

10. Hvernig eiga mennirnir eftir að skilja tímaskyn Jehóva betur í nýja heiminum? [si bls. 283 gr. 32]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Rétt eða rangt: Í 1. Korintubréfi 2:9 talar Páll postuli um það sem Jehóva hefur fyrirbúið sem arf handa trúföstu fólki sínu. Skýrðu svarið. [ip-2 rammi á bls. 366]

12. Til hvaða freistinga vísa orðin í 1. Korintubréfi 10:13 og hvernig sér Jehóva um að ‚við fáum staðist‘? [w92 1.4. bls. 23 gr. 11-14]

13. Hvaða áhrif hefur fyrirmynd Jesú í örlæti á kristna menn? (2. Kor. 8:9) [w92 1.7. bls. 14 gr. 10]

14. Hvernig var lögmálið „tyftari vor, þangað til Kristur kom“? (Gal. 3:24) [w02 1.7. bls. 24 gr. 11]

15. Hvað „er runnið frá heimsvættunum“ sem við þurfum að varast svo að við látum ekki leiða okkur afvega? (Kól. 2:8)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila