Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 13. október
Söngur 215
10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Á næstu þjónustusamkomu verður dagskrá landsmótsins „Gefið Guði dýrðina“ rifjuð upp með þátttöku áheyrenda. Hvetjið alla til að undirbúa sig fyrir upprifjunina með því að fara yfir minnispunktana með hliðsjón af spurningunum á bls. 1. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 8.
20 mín.: „Þjónið Drottni með gleði“* (Allir ættu að hafa viðauka Ríkisþjónustu okkar í janúar 2002 við höndina þegar farið er yfir þetta efni.) Eftir að farið hefur verið yfir 4. grein skal nefna að við bjóðum Kröfubæklinginn og Þekkingarbókina í nóvember. Farið stuttlega yfir eina af kynningunum sem stungið er upp á í viðauka Ríkisþjónustu okkar í janúar 2002. Bregðið síðan upp æfingu þar sem boðberar búa sig undir boðunarstarfið og nota þessa kynningu. Hvetjið alla til að búa sig vel undir boðunarstarfið.
15 mín.: Það er gefandi að halda biblíunámskeið. Ræða með þátttöku áheyrenda. Segið nokkrar frásögur af biblíunámskeiðum sem birst hafa í ritum okkar. (wE00 1.3. bls. 6; yb98 bls. 55-60) Bjóðið áheyrendum að tjá sig um hvað læra megi af frásögunum og það gagn sem við höfum af því að halda biblíunámskeið.
Söngur 172 og lokabæn.
Vikan sem hefst 20. október
Söngur 86
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
40 mín.: „Landsmótið vekur hjá okkur löngun til að gefa Guði dýrðina!“ Í umsjón öldungs. Hafið inngangsorðin ekki lengri en eina mínútu og fjallið síðan um dagskrá mótsins með hjálp spurninganna í greininni. Gætið þess að tími gefist til að ræða um allar spurningarnar til dæmis með því að leyfa ekki nema eitt svar við sumum þeirra. Ekki er hægt að lesa alla ritningarstaðina sem vísað er til; boðberar geta notað þá til að auðvelda sér að finna svörin. Svörin ættu að draga fram gagnið af því efni sem fram kom á mótinu.
Söngur 112 og lokabæn.
Vikan sem hefst 27. október
Söngur 64
12 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir október. Hvetjið alla til að fara yfir minnispunktana frá sérstaka mótsdeginum á síðasta þjónustuári til að búa sig undir upprifjun á þjónustusamkomu í næstu viku. Notið tillögurnar á bls. 8 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. nóvember og Vaknið! október-desember. Í báðum tilfellum ætti að bjóða bæði blöðin saman, jafnvel þótt aðeins annað sé kynnt. Í annarri kynningunni ætti að sýna hvernig bregðast má við þegar viðmælandinn segir: „Ég hef ekki áhuga.“ — Sjá Biblíusamræðubæklinginn, bls. 8-9.
20 mín.: Notaðu sverð andans. (Ef. 6:17) Umræður við áheyrendur byggðar á Boðunarskólabókinni, bls. 143-4. Bjóddu áheyrendum að svara eftirfarandi spurningum: (1) Hvers vegna notum við Biblíuna til að svara spurningum? (2) Hvað segir nafnið Vottar Jehóva um okkur? (3) Hvaða fordæmi gaf Jesús og hvernig getum við líkt eftir honum? (4) Hvaða aðferðir henta vel á safnaðarsvæðinu til að vekja máls á Biblíunni? (5) Hvers vegna er gott að lesa beint upp úr Biblíunni þegar það er hægt? (6) Hvernig geta öldungar hvatt aðra til að nota Biblíuna vel? Sviðsetjið vel undirbúna sýnikennslu byggða á æfingunni á bls. 144 þar sem hæfur boðberi notar að minnsta kosti einn ritningarstað til að svara spurningu. Hvetjið alla til að setja sér það markmið að nota Biblíuna alltaf þegar þeir vitna.
13 mín.: Frásögur af safnaðarsvæðinu. Bjóddu áheyrendum að segja frásögur, sem tengjast landsmótinu, eða af óformlegum vitnisburði á vinnustað, í skólanum eða annars staðar.
Söngur 52 og lokabæn.
Vikan sem hefst 3. nóvember
Söngur 147
5 mín.: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín.: Staðbundnar þarfir.
25 mín.: Verið auðug af góðum verkum. (1. Tím. 6:18) Öldungur notar eftirfarandi spurningar til að ræða við söfnuðinn um sérstaka mótsdaginn á síðasta þjónustuári. Hann býður safnaðarmönnum að segja frá hvernig þeim hefur gengið að fara eftir því sem þeir lærðu. (Hægt er að fela boðberum fyrir fram að segja frá vissum atriðum.) Leggið áherslu á eftirfarandi dagskrárliði: (1) „Góð verk eru mikill gróðavegur.“ (Préd. 2:11) Hvers vegna stunda þjónar Guðs góðu verkin sem lýst er í orði hans í stað hinna gagnslausu verka þessa heims? (2) „Verum rík í augum Guðs.“ (Matt. 6:20) Hvernig hafa sumir ‚safnað sér fjársjóðum á himni‘ og með hvaða árangri? (3) „Auðgaðu boðunarstarf þitt með því að stýra biblíunámskeiði.“ (om bls. 91) Hvað getur hjálpað okkur að hefja nýtt biblíunámskeið og halda því gangandi? (4) „Góð verk núna á uppskerutímanum.“ (Matt. 13:37-39) Hvaða góð verk unnu frumkristnir menn og hvernig hefur starf Guðsríkis aukist á okkar dögum? (5) „Vegsamaðu Jehóva með góðum verkum.“ (Matt. 5:14-16) Hvernig hafa sumir ‚látið ljós sitt lýsa‘? (6) „Unglingum hrósað fyrir að lofa Jehóva með góðum verkum.“ (Sálm. 148:12, 13) Hvernig eru kristin ungmenni á farandsvæðinu Jehóva til lofs? (7) „Höldum áfram að vinna góð verk og uppskerum blessun Jehóva.“ (Orðskv. 10:22) Hvað getum við uppskorið sem einstaklingar, fjölskyldur, söfnuður og heimsskipulag með því að vera önnum kafin af góðum verkum?
Söngur 180 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.