Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 14. apríl
Söngur 20
15 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að lesa 4. Mósebók kafla 25 og Insight on the Scriptures 2. bindi, bls. 419, gr. 3-5 og horfa á myndbandið Warning Examples for Our Day (Dæmi okkur til varnaðar) áður en fjallað verður um það á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 28. apríl. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 8.
10 mín.: Spurningakassinn. Ræða öldungs.
20 mín.: ‚Skínið sem ljós.‘* Ljúkið með fimm mínútna ræðu byggðri á Varðturninum 1. júlí 1997, bls. 28-9, gr. 8-13. Leggið áherslu á hvers vegna við höldum ekki boðskapnum um Guðsríki leyndum.
Söngur 134 og lokabæn.
Vikan sem hefst 21. apríl
Söngur 25
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín.: „Við lofum Jehóva þegar við söfnumst saman.“* Notið námsspurningarnar. Hvetjið alla til að vera viðstaddir alla dagskrána frá föstudagsmorgni þangað til síðdegis á sunnudegi. Leggið áherslu á að það sé mikilvægt að fara eftir því sem við heyrum, ekki aðeins að hlusta. Minnið alla á að upprifjun verður á aðalatriðum mótsins á þjónustusamkomu í október eins og undanfarin ár. Það er því gott að skrifa hjá sér minnispunkta á mótinu.
20 mín.: ‚Þeir geri það er geta‘* Eigið viðtal við einn eða tvo boðbera sem notfæra sér það að vera einhleypir til að efla hagsmuni Guðsríkis. Biðjið þá að segja frá hvað veitir þeim gleði í þjónustunni.
Söngur 35 og lokabæn.
Vikan sem hefst 28. apríl
Söngur 51
8 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslu fyrir apríl. Notið tillögurnar á bls. 8 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. maí og Vaknið! apríl-júní.
15 mín.: „Verið fyrirmynd í góðum verkum.“* Notið námsspurningarnar. Undirstrikið hvers vegna góð hegðun allra sé nauðsynleg.
22 mín.: „Lærum af myndbandinu Warning Examples for Our Day.“ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu. Farið síðan beint yfir í umræður við áheyrendur um spurningarnar í greininni.
Söngur 89 og lokabæn.
Vikan sem hefst 5. maí
Söngur 120
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið nokkrum orðum um þær tillögur sem eru gefnar á bls. 2 í Ríkisþjónustu okkar fyrir apríl 2002 í dagskrárliðnum „Búum okkur undir sumarið.“
18 mín.: „Snyrtilegur og smekklegur klæðnaður sýnir Guði virðingu.“* Í umsjá öldungs. Notið námsspurningarnar. Látið bróður, sem les vel, lesa allar greinarnar upphátt.
17 mín.: „Endurheimsóknir eru undanfari biblíunámskeiðs.“* Í umsjá öldungs sem notar námsspurningarnar. Biðjið áheyrendur að segja stuttar frásögur úr boðunarstarfinu sem styðja rökfærsluna í greininni. Þegar farið er yfir grein 5, sviðsetjið raunverulegt dæmi af svæðinu þar sem biblíunámskeiði er komið af stað.
Söngur 126 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.