Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.03 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2003
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 10. mars
  • Vikan sem hefst 17. mars
  • Vikan sem hefst 24. mars
  • Vikan sem hefst 31. mars
  • Vikan sem hefst 7. apríl
Ríkisþjónusta okkar – 2003
km 3.03 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 10. mars

Söngur 5

10 mín.: Staðbundnar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Minnið boðbera, sem vilja vera aðstoðarbrautryðjendur í apríl, á að gera áætlanir um það núna og skila inn umsókn tímanlega. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 8.

15 mín.: Að rökræða út frá ritningunni. Umræður við áheyrendur. Hvernig getum við lært að rökræða við fólk í boðunastarfinu? (1) Aflaðu þér haldgóðrar þekkingar á Biblíunni með reglulegu einkanámi og samkomusókn. (2) Hugleiddu það sem þú hefur lært, skoðaðu málin út frá fleiri sjónarhornum. (3) Reyndu ekki bara að finna skýringar á ritningarstöðum heldur einnig biblíuleg rök fyrir þeim. (4) Skoðaðu hvernig þú myndir útskýra ritningartexta fyrir mismunandi manngerðum. (5) Veltu fyrir þér hvernig þú myndir nota dæmi til að skýra ákveðin atriði.

20 mín.: „Kappkostaðu það sem gott er.“* (Greinar 1-12) Hafið stutta sýnikennslu, eftir að farið hefur verið yfir gr. 6, þar sem boðberi býður ættingja, nágranna, skólafélaga eða vinnufélaga á minningarhátíðina og vitnar í boðsmiðann. Ef ekki er búið að leggja boðsmiðana fram í ritaafgreiðsluna ætti að gera það eftir samkomuna.

Söngur 19 og lokabæn.

Vikan sem hefst 17. mars

Söngur 34

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

15 mín.: Veldu þér félagsskap af skynsemi. Ræða öldungs byggð á Vaknið! á ensku 22. febrúar 1997, bls. 13 og efninu undir fyrirsögninni „Bad Associations“ (slæmur félagsskapur) á bls. 189 í Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni). Sýnið fram á hvernig frumreglurnar eiga bæði við börn og unglinga sem og fullorðna. Dragið fram gagnið af því að eiga vini sem elska Jehóva og sýna með breytni sinni að þeir leitast við að halda sér við staðla hans.

20 mín.: „Kappkostaðu það sem gott er.“* (Greinar 13-26) Í umsjá umsjónarmanns í forsæti. Hafið stutta sýnikennslu þegar farið er yfir grein 14 þar sem öldungur heimsækir veikburða bróður til að hvetja hann. Öldungurinn útskýrir vingjarnlega hvernig bróðirinn geti átt þátt í aukinni starfsemi safnaðarins á tímabilinu kringum minningarhátíðina.

Söngur 53 og lokabæn.

Vikan sem hefst 24. mars

Söngur 72

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Notið tillögurnar á bls. 8 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. apríl og Vaknið! apríl-júní. Í báðum tilfellunum ætti að bjóða bæði blöðin saman jafnvel þótt aðeins annað sé kynnt. Þar sem aprílblað Varðturnsins er vel til þess fallið að nota til að bjóða fólki á minningarhátíðina er leyfilegt að nota það nú þegar í boðunarstarfinu.

15 mín.: Staðbundnar þarfir.

20 mín.: Vottar Jehóva — afl til góðs í þjóðfélaginu. Ræða með þátttöku áheyrenda. Öðru hverju höfum við tækifæri til að benda á hvernig þjónusta okkar og fordæmi gagnast þjóðfélaginu. Biðjið áheyrendur um að segja hvernig það á við um eftirfarandi: (1) Við kennum fólki að lifa eftir siðgæðisreglum Biblíunnar. (2) Við boðum heiðarleika og virðingu fyrir yfirvöldum. (3) Við kennum að fólk af mismunandi kynþáttum, þjóðerni og samfélagshópum eigi að lifa í sátt og samlyndi. (4) Við hjálpum öðrum að bæta fjölskyldulíf sitt með því að fara eftir frumreglum Biblíunnar. (5) Við höfum kennt þúsundum að lesa og skrifa. (6) Við leggjum okkur fram við að hjálpa þegar hamfarir dynja á. (7) Við höfum átt mikilvægan þátt í að tryggja trúfrelsi sem allir hafa getað notið. — Sjá Jehovahs Witnesses — Proclaimers of Gods Kingdom (Boðendabókina), bls. 699.

Söngur 121 og lokabæn.

Vikan sem hefst 31. mars

Söngur 130

12 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir mars. Rifið upp ritatilboðið fyrir apríl.

13 mín.: Frásögur af safnaðarsvæðinu. Bjóðið boðberum að segja frá ánægjulegum atburðum sem hafa átt sér stað með aukinni starfsemi í marsmánuði. Hrósið þeim fyrir viðleitnina og hvetjið alla til að eiga sem mestan þátt í boðunarstarfinu í apríl.

20 mín.: „Jehóva er mjög vegsamlegur.“* Leggið áherslu á mikilvægi minningarhátíðarinnar. Bendið á hvernig allir geti aðstoðað fólk við að mæta. Útskýrið hvað gera megi til að hafa samband við óvirka og endurvekja áhuga þeirra. Bjóðið áheyrendum að segja frá ánægjulegum frásögum í tengslum við minningarhátíðina á síðasta ári.

Söngur 173 og lokabæn.

Vikan sem hefst 7. apríl

Söngur 191

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar.

15 mín.: Hafðu gagn af Árbókinni 2003. Ræða með þátttöku áheyrenda. Ræðið það helsta í „Bréfi frá hinu stjórnandi ráði“ á bls. 7 en þetta er þýðing á bréfinu í Árbókinni. Biðjið nokkra boðbera fyrir fram um að endursegja frásögur og upplýsingar sem þeim þóttu sérstaklega hvetjandi og trústyrkjandi. Nefnið helstu tölur úr ársskýrslunni. Hvetjið fjölskyldur til að lesa bókina smám saman yfir árið. Komið með tillögur um hvernig hægt sé að beina nýjum til skipulagsins og hvetja þá til að sækja samkomur.

20 mín.: „Sannleikurinn gerir okkur frjáls.“* Takið með efni úr rammagreininni í Varðturninum á ensku 1. október 1998, bls. 6. Bjóðið áheyrendum að segja frá hvernig sannleikurinn í orði Guðs hefur veitt þeim frelsi.

Söngur 217 og lokabæn.

* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila