Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.03 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2003
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 10. febrúar
  • Vikan sem hefst 17. febrúar
  • Vikan sem hefst 24. febrúar
  • Vikan sem hefst 3. mars
Ríkisþjónusta okkar – 2003
km 2.03 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 10. febrúar

Söngur 4

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að sjá myndbandið Faithful Under Trials — Jehovah’s Witnesses in the Soviet Union (Trúfastir í prófraunum — Vottar Jehóva í Sovétríkjunum) til að geta tekið þátt í umræðunum á samkomu í vikunni sem hefst 24. febrúar. Sviðsetjið síðustu tillöguna á bls. 8. Farið yfir „Spurningakassan.“

35 mín.: „Prédikaðu og berðu rækilega vitni.“* Í umsjón starfshirðis. Hvetjið alla þá sem geta til að vera aðstoðarbrautryðjendur í mars og apríl. Biðjið þá sem voru í brautryðjandastarfinu á vormánuðum í fyrra að segja frá því. Hvernig réðu þeir högum sínum? Hverju þurftu þeir að hagræða? Hvaða blessanir uppskáru þeir? Veitti starfið þeim gleði? Farið yfir tillögurnar að stundatöflu í rammanum á bls. 4. Tilkynnið að hægt sé að fá umsóknareyðublöð fyrir aðstoðarbrautryðjandastarf eftir samkomu.

Söngur 30 og lokabæn.

Vikan sem hefst 17. febrúar

Söngur 48

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Minnið á ritatilboðið í mars. Notið tillögur í viðauka Ríkisþjónustu okkar fyrir janúar 2002 og komið með eitt eða tvö dæmi um hvernig bjóða má Þekkingarbókina. Leggið áherslu á markmið okkar að hefja biblíunámskeið.

15 mín.: „Geturðu boðið fram heimili þitt?“ Bóknámsumsjónarmaður flytur ræðu. Takið með efni úr „Spurningakassanum“ í Ríkisþjónustu okkar fyrir apríl 2001 og febrúar 1990. Segið frá hve margir bóknámshópar eru í söfnuðinum og hve margir eru viðstaddir að meðaltali. Biðjið einn eða tvo boðbera að segja frá því hvernig það hefur verið þeim og fjölskyldum þeirra til blessunar að hafa bóknám á heimili sínu. Hver sem vill bjóða fram heimili sitt ætti að láta umsjónarmann í forsæti vita af því.

20 mín.: „Hvað lætur þú ganga fyrir?“* Biðjið fyrir fram einn eða tvo boðbera um að segja frá hvernig þeim hefur tekist að hagræða málum þannig að þeir geti gert meira í þjónustunni.

Söngur 57 og lokabæn.

Vikan sem hefst 24. febrúar

Söngur 74

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir febrúar. Notið tillögurnar á bls. 8 og sýnið hvernig bjóða má Varðturninn 1. mars og Vaknið! janúar-mars. Í báðum tilfellunum ætti að bjóða bæði blöðin saman jafnvel þótt aðeins annað sé kynnt.

10 mín.: „Hjálp í tæka tíð.“ Ræða öldungs. Bendið á að það endurspegli ástríka umhyggju Jehóva fyrir þjónum sínum að sérstök áhersla sé lögð á að hjálpa óvirkum.

25 mín.: „Fræðandi og hvetjandi myndband.“ Byrjið strax að ræða við áheyrendur um myndbandið Faithful Under Trials — Jehovah’s Witnesses in the Soviet Union (Trúfastir í prófraunum — Vottar Jehóva í Sovétríkjunum). Notið eingöngu spurningarnar í rammagreininni. Skiptið tímanum jafnt á milli spurninga þannig að nægur tími sé fyrir nokkur svör við síðustu spurningunni. Ljúkið með því að endursegja rammagreinina á bls. 192 í Árbókinni 2002.

Söngur 56 og lokabæn.

Vikan sem hefst 3. mars

Söngur 14

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið nokkrum orðum um greinina „Nýtt fyrirkomulag á bókasöfnum ríkissalanna.“ Takið fram hver verður umsjónarmaður bókasafnsins í ríkissalnum.

15 mín.: Staðbundnar þarfir.

20 mín.: „Verum heilbrigð í hugsun er endirinn nálgast.“* Biðjið áheyrendur um að segja frá hvaða markmiðum í sannleikanum þeir sækist eftir, þegar farið er yfir greinarnar 3-4. Takið með efni úr Sameinuð í tilbeiðslu bókinni, bls. 177.

Söngur 127 og lokabæn.

* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila