Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 11.02 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2002
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 11. nóvember
  • Vikan sem hefst 18. nóvember
  • Vikan sem hefst 25. nóvember
  • Vikan sem hefst 2. desember
Ríkisþjónusta okkar – 2002
km 11.02 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 11. nóvember

Söngur 183

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið tillöguna neðst á bls. 8.

15 mín.: Stuðningsmenn sannrar tilbeiðslu — fyrr og nú. Ræða byggð á Varðturninum á ensku 1. nóvember 2002, bls. 26-30.

20 mín.: „Leggðu bóknámsumsjónarmanninum lið“a Í umsjón öldungs sem er bóknámsumsjónarmaður. Takið með ábendingar á bls. 70 í Boðunarskólabókinni þegar farið er yfir grein 3. Hrósið boðberum fyrir hvernig þeir styðja bóknámshópinn sinn og bendið vingjarnlega á svið þar sem hægt er að taka framförum.

Söngur 114 og lokabæn.

Vikan sem hefst 18. nóvember

Söngur 78

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Farið yfir rammagreinina „Vantar bækur í safnið þitt?“

10 mín.: Spurningakassinn. Ræða hæfs öldungs.

25 mín.: „Höfuð fjölskyldunnar eiga að halda uppi góðum andlegum venjum.“ Eftir stutt inngangsorð byggð á efninu í greinum 1-3 á að fara yfir greinar 4-13 með spurningum og svörum. Ef tími leyfir mætti lesa greinar 7, 8, 11 og 12. Eigið viðtal við eitt foreldri eða tvo foreldra. Hvað hefur gert fjölskyldum þeirra kleift að halda uppi góðum, andlegum venjum? Hvað hefur fjölskyldan þurft að leggja á sig? Hvernig hefur þetta gagnast henni? Ljúkið með nokkrum orðum út frá grein 14.

Söngur 31 og lokabæn.

Vikan sem hefst 25. nóvember

Söngur 16

10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Notið tillögurnar á bls. 8 og látið hjón sýna hvernig bjóða má Varðturninn 1. desember og Vaknið! október-desember. Eiginmaðurinn kynnir Varðturninn og eiginkonan Vaknið! Útskýrið í annarri kynningunni hvernig starf okkar er fjármagnað. — Sjá bls. 2 í Varðturninum og bls. 5 í Vaknið!

15 mín.: „Kunngerum sannleikann um Jesú.“b Takið með efni úr Boðunarskólabókinni bls. 278. Í næstu viku verður farið yfir greinina „Boðunarskólinn menntar okkur í því sem mestu máli skiptir.“ Það væri því gott ef þeir sem eiga bókina á erlendu máli tækju hana með sér þar sem hún er enn ekki komin á íslensku.

20 mín.: „Sýnum ‚föðurlausum‘ kærleika og umhyggju.“ Byrjið á þriggja mínútna ræðu um hvaða augum Jehóva lítur ,föðurlausa‘ út frá 1. tölugreininni og Insight on the Scriptures 1. bindi, bls. 816. Farið yfir hinar tölugreinarnar með spurningum og svörum. Bendið á hvernig aðrir geta boðið fram aðstoð og verið til hvatningar. Takið stuttlega með efni úr Vaknið! á ensku 8. október 1995, bls. 8-9, þegar farið er yfir greinar 3-4.

Söngur 142 og lokabæn.

Vikan sem hefst 2. desember

Söngur 213

8 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir nóvember. Rifjið stuttlega upp kynningu fyrir Mesta mikilmenni sem lifað hefur. — Sjá Ríkisþjónustu okkar í júní 1998, bls. 8.

12 mín.: Staðbundnar þarfir.

25 mín.: „Boðunarskólinn menntar okkur í því sem mestu máli skiptir.“ Umræður við áheyrendur í umsjón skólahirðis. Skapið eftirvæntingu eftir nýju skóladagskránni sem hefst í janúar. Beinið athyglinni að mismunandi þáttum í „Námsskrá Boðunarskólans árið 2003“ sem er í viðauka Ríkisþjónustu okkar í október 2002. Útskýrið hver skilyrðin eru til að geta innritað sig í Boðunarskólann eins og þau eru lögð fram á bls. 282 í Boðunarskólabókinni og hvetjið þá sem ekki hafa innritað sig að gera það ef þeir uppfylla skilyrðin.

Söngur 127 og lokabæn.

[Neðanmáls]

a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila