Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 8. júlí
Söngur 201
15 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið tillöguna „Kynning fyrir boðunarstarfið“ neðst á bls. 4 á tvo mismunandi vegu og tengið við tvo af bæklingunum sem eru tilboð mánaðarins. Sýnið um leið mismunandi leiðir til að bregðast við samræðutálmanum: „Við erum kristin á þessu heimili.“ — Sjá Biblíusamræðubæklinginn, bls. 11.
10 mín.: Spurningakassinn. Ræða öldungs sem sníður efnið að aðstæðum.
20 mín.: Verum undir það búin að vitna óformlega. Umræður við áheyrendur byggðar á bls. 93-94 í Our Ministry bókinni. Sviðsetjið tvær eða þrjár tillögur á forsíðu viðaukans í Ríkisþjónustu okkar fyrir janúar 2002 og sýnið hvernig hægt sé að vitna óformlega fyrir ókunnugum, nágranna, ættingja eða kunningja.
Söngur 139 og lokabæn.
Vikan sem hefst 15. júlí
Söngur 144
8 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
17 mín.: „Fólki af öllum tungum safnað saman.“a Takið með efni úr Varðturninum á ensku 1. apríl 2002, bls. 24. Lýsið í stuttu máli hvað gert sé til að ná til þeirra sem tala annað tungumál á starfssvæðinu, ef það á við, og sviðsetjið kynninguna í grein 4.
20 mín.: Góðar ástæður til að nota Biblíuna í boðunarstarfinu. Ræða með þátttöku áheyrenda. Jesús þekkti Ritningarnar og vitnaði títt í þær í kennslu sinni. (Lúk. 24:27, 44-47) Hann kenndi ekki frá eigin brjósti. (Jóh. 7:16-18) Það skiptir líka máli að við notum orð Guðs þar sem það hefur meiri kraft en nokkuð sem við getum sagt sjálf. (Jóh. 12:49, 50; Hebr. 4:12) Einlægt fólk laðast að þeirri huggun og von sem Biblían býður upp á. Settu þér markmið að lesa að minnsta kosti einn ritningarstað í kynningu þinni. Bendið á að ritningarstöðum er fléttað inn í blaðakynningu þessa mánaðar. Biðjið áheyrendur um að segja frá hvernig þeim hefur tekist að nota Biblíuna í boðunarstarfinu og hvaða áhrif það hefur á þá sjálfa og þá sem vitnað er fyrir.
Söngur 215 og lokabæn.
Vikan sem hefst 22. júlí
Söngur 47
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir ábendingar um upprifjun á dagskrá landsmótsins undir fyrirsögninni „Vikan sem hefst 5. ágúst“ á þessari blaðsíðu.
17 mín.: Hvað geturðu sagt við þann sem spyr um íslam? Ræða og sýnikennsla. Útskýrið hvað sé hliðstætt með Biblíunni og Kóraninum með hjálp bókarinnar Mankind’s Search for God, (Leit mannkyns að Guði) kafla 12. (Sjá rammann á bls. 285.) Bendið á muninn á kenningu íslams um sálina (bls. 297-300) og útskýringum Biblíunnar. (Sjá neðanmálsathugasemdina á bls. 299.) Sviðsetjið hvernig hægt sé að sýna áhugasömum hvað Biblían segir um sálina og notið til þess bókina Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókina) bls. 375-9.
18 mín.: Hvernig get ég forðast hættur á Netinu? Ræða með þátttöku áheyrenda út frá Vaknið! apríl-júní 2000, bls. 27-29. Bendið á hætturnar samfara ótakmörkuðum aðgangi að Netinu og útskýrið hvað hægt sé að gera til að ánetjast því ekki. Biðjið áheyrendur að segja frá hvernig þessi ráð hafa gagnast þeim.
Söngur 61 og lokabæn.
Vikan sem hefst 29. júlí
Söngur 54
10 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir júlí. Látið foreldri og barn sviðsetja hvort sína tillöguna að blaðakynningu á bls. 4. Hvetjið foreldra til að þjálfa börnin sín svo þau taki markvissum framförum í boðunarstarfinu.
12 mín.: „Nafn Guðs í biblíutilvitnunum.“ Ræða öldungs. Takið með efni úr Spurningakassa Ríkisþjónustu okkar í júlí 1995.
23 mín.: „Verum samstillt.“b Takið með efni úr Vaknið! á ensku 22. apríl 2000, bls. 9 og 10, þegar farið er yfir grein 3. Við grein 4 má bæta við athugasemdum úr Varðturninum 1. september 1995, bls. 15 og 16, greinunum 4-6.
Söngur 81 og lokabæn.
Vikan sem hefst 5. ágúst
Þjónustusamkoman fellur niður vegna landsmótsins 2002, „Kostgæfir boðberar Guðsríkis,“ sem haldið er dagana 9. til 11. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Í október verður heil þjónustusamkoma helguð upprifjun á landsmótinu. Til að allir séu vel undirbúnir og geti tekið þátt í umræðunum er gott að hafa í huga að punkta hjá sér tillögur, sem koma fram á mótinu, sem við ætlum okkur að nota annaðhvort í daglegu lífi okkar eða boðunarstarfinu. Þá getum við einnig sagt frá hvernig við höfum notfært okkur tillögurnar eftir að mótinu lauk. Það verður hvetjandi fyrir alla að heyra hvernig við höfum nýtt okkur þessa tímabæru og góðu kennslu.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.