Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.02 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2002
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 13. maí
  • Vikan sem hefst 20. maí
  • Vikan sem hefst 27. maí
  • Vikan sem hefst 3. júní
Ríkisþjónusta okkar – 2002
km 5.02 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 13. maí

Söngur 37

15 mín.: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Sviðsetjið kynninguna neðst á blaðsíðu 8 og tengið við Kröfubæklinginn. Sýnið tvær mismunandi leiðir til að bregðast við samræðutálmanum „Ég er upptekin(n).“ — Sjá Biblíusamræðubæklinginn blaðsíðu 11 og 12.

15 mín.: „Einstakt tækifæri til að uppörvast saman.“ Ræða. Vektu eftirvæntingu fyrir landsmótinu. Hvetjið alla til að vera viðstaddir alla dagskrána alla dagana.

15 mín.: Ræða öldungs byggð á greininni „Öldungar — þjálfið aðra til að bera byrðina“ í Varðturninum 1. febrúar 2002 blaðsíðu 29-31.

Söngur 115 og lokabæn.

Vikan sem hefst 20. maí

Söngur 13

15 mín.: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

12 mín.: „Nærðu þig andlega.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Farið yfir ástæðurnar fyrir því að allir ættu að hlusta með athygli á mótsdagskrána. Leggið áherslu á mikilvægi þess að hlusta ekki aðeins heldur fara eftir því sem við lærum. Minnið á fyrirkomulagið sem var í fyrra og verður aftur í ár að allir taki þátt í upprifjun á efni mótsins á þjónustusamkomu í október. Hvetjið alla til að punkta hjá sér aðalatriðin. Bjóðið nokkrum viðstöddum að tjá sig um hvaða gagn þeir höfðu af dagskránni í fyrra.

18 mín.: „Verum til sóma í klæðaburði og snyrtingu.“ a Í umsjá öldungs sem les hverja tölugrein eftir að fjallað hefur verið um hana. Leiðið öllum fyrir sjónir hvers vegna það sé mikilvægt að hugsa vel um klæðaburð okkar og útlit á almannafæri.

Söngur 169 og lokabæn.

Vikan sem hefst 27. maí

Söngur 208

12 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir maí. Notið tillögurnar á blaðsíðu 8 og biðjið eldri boðbera um að sýna hvernig bjóða megi Varðturninn 1. júní og ungan boðbera hvernig bjóða megi Vaknið! apríl-júní. Eftir hvora sýnikennslu skal bent á hversu auðvelt það sé að nota ritningarstað í kynningunni.

15 mín.: „Hefur söfnuðurinn þinn stórt starfssvæði?“ Ræða með þátttöku áheyrenda í umsjá starfshirðis. Greinið frá því hve mikið svæði söfnuðurinn hefur og á hve stórum hluta þess var starfað á síðasta ári. Útskýrið hvernig heimfæra megi tillögurnar upp á aðstæður á ykkar svæði. Nefnið hvað gert verður á næstunni til að fara yfir svæði sem sjaldan er starfað á.

18 mín.: „Notar þú Kröfubæklinginn til að koma af stað námskeiðum?“ (Allir ættu að hafa með sér viðaukann í Ríkisþjónustu okkar frá janúar 2002 til að geta fylgst með.) Byrjið á því að hafa vel undirbúna sýnikennslu þar sem komið er af stað námskeiði samkvæmt tillögunni í grein 3. Lýsið síðan bæklingnum í megindráttum og hvernig hann er sniðinn að því að hefja námskeið. Bendið á gildi þess að rifja upp tillögurnar í viðaukanum frá janúar 2002. Spyrjið áheyrendur hvaða tillögur hafi reynst þeim vel. Ljúkið með því að endurtaka sýnikennsluna hér að ofan.

Söngur 93 og lokabæn.

Vikan sem hefst 3. júní

Söngur 178

15 mín.: Staðbundnar tilkynningar. Biðjið boðbera fyrir fram um að segja frá þeirri gleði og ánægju sem aðstoðarbrautryðjandastarfið í mars, apríl eða maí hefur veitt þeim.

15 mín.: Mismunandi biblíuþýðingar í Rökræðubókinni. Stutt ræða og síðan umræður við áheyrendur. Endursegið grein 2 á blaðsíðu 8 í Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni) og útskýrið hvers vegna leggja eigi áherslu á Biblíuna í boðunarstarfinu. Bendið á listann með biblíuskammstöfunum á blaðsíðu 6 og skýrið hvers vegna við notum stundum orðalag úr öðrum þýðingum. Ræðið ábendingarnar sem eru gefnar í Varðturninum 1. nóvember 1997, blaðsíðu 14, grein 2 og blaðsíðu 17, grein 15. Notið fyrirsagnirnar „Apostolic Succession“ (postulleg arftaka), „Images“ (líkneski), og „Trinity“ (þrenning) og bjóðið áheyrendum að sýna fram á hvernig samanburður á mismunandi biblíuþýðingum getur gagnast okkur þegar við kennum sannleikann.

15 mín.: „Trúin knýr okkur til góðra verka.“ b Eigið stutt viðtal við kostgæfinn boðbera þegar farið er yfir grein 2. Biðjið hann um að segja frá hvernig þátttaka í boðunarstarfinu sé vottur um trú hans um leið og það styrkir hana.

Söngur 56 og lokabæn.

[Neðanmáls]

a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila