Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 8. apríl
Söngur 39
13 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að horfa á myndbandið Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?) áður en fjallað verður um það á þjónustusamkomunni eftir tvær vikur. Sviðsetjið kynninguna neðst á bls. 8 og tengið við Kröfubæklinginn. Sýnið tvær mismunandi leiðir til að bregðast við samræðutálmanum „Ég hef mína eigin trú.“ — Sjá Biblíusamræðubæklinginn bls. 10-11.
12 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: ‚Gerum öllum gott.‘ a Yfirferð með spurningum og svörum. Eigið síðan viðtal við einn eða tvo boðbera sem greina frá hvernig þeim hefur tekist að færa út kvíarnar í þjónustunni.
Söngur 157 og lokabæn.
Vikan sem hefst 15. apríl
Söngur 101
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín: Brautryðjendur halda áfram að hjálpa öðrum. Starfshirðir stjórnar pallborðsumræðum með bóknámsumsjónarmanni, brautryðjanda og boðbera. Starfshirðirinn rifjar upp efni greinarinnar „Brautryðjendur hjálpa öðrum“ í Ríkisþjónustu okkar fyrir september 1998, bls. 4. Hann ræðir í framhaldinu við hvern og einn í hópnum um hlutverk hans í áætluninni og hvernig framkvæmd hennar hefur gengið. Hvað hefur verið gert til að ná góðum árangri? Starfshirðirinn hvetur alla boðbera til að láta sig vita ef þeir vilja fá aðstoð í boðunarstarfinu. Þeir sem áður hafa þegið hjálp geta fengið frekari aðstoð með aðrar hliðar þjónustunnar.
20 mín: „Þjónusta í fullu starfi veitir gleði.“ b Hvetjið unglinga til að sækja um aðstoðarbrautryðjandastarf á vor- og sumarmánuðum.
Söngur 199 og lokabæn.
Vikan sem hefst 22. apríl
Söngur 90
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
10 mín: Vertu stundvís! Ræða. Öllu sem tengist tilbeiðslu okkar og þjónustu er „afmörkuð stund.“ (Préd. 3:1) Við viljum gjörnýta okkur allt sem skipulag Jehóva lætur okkur í té. Safnaðarsamkomur og samkomur fyrir boðunarstarf eiga að hefjast á tilsettum tíma. Jehóva er ekki seinn á sér að framkvæma fyrirætlanir sínar. (Hab. 2:3) Þurfum við að bæta okkur á þessu sviði? Stöku sinnum erum við óhjákvæmilega sein. En með góðri skipulagningu getum við verið stundvís að jafnaði þannig að við mætum ekki að staðaldri eftir sönginn og bænina í upphafi samkomunnar eða í samansöfnun eftir að búið er að skipuleggja boðunarstarfið. Ræðið raunhæfar leiðir til að temja sér stundvísi þegar tilbeiðsla eða önnur þjónusta er á dagskrá. — Sjá Varðturninn á ensku 15. júní 1990, bls. 29.
25 mín: „Frábærar viðtökur“ cLeyfið áheyrendum að tjá sig stuttlega um myndbandið Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?) þegar farið er yfir grein 1. Farið síðan beint yfir í umræður við áheyrendur um spurningarnar í grein 2-7. Í júní verður farið yfir myndbandið Our Whole Association of Brothers (Bræðrafélag okkar).
Söngur 191 og lokabæn.
Vikan sem hefst 29. apríl
Söngur 162
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir apríl. Notið tillögurnar á bls. 8 og biðjið safnaðarþjón um að sýna hvernig bjóða má Varðturninn 1. maí og systur hvernig bjóða má Vaknið! apríl-júní. Ítrekið fyrstu eina eða tvær setningarnar sem notaðar voru í hvorri kynningu til að vekja áhuga húsráðanda.
15 mín: „Boðun Guðsríkis bjargar mannslífum“ d Fáið áheyrendur til að tjá sig um heimfærslu ritningarstaðanna.
20 mín: Rannsóknir og efnisleit með Rökræðubókinni. Umræður við áheyrendur. Oft á tíðum koma upp spurningar í boðunarstarfinu um efni sem ekki er hægt að finna í efnisyfirlitinu (Principal Subjects) á bls. 5-6 í bókinni Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni). Atriðisorðaskráin (Index) á blaðsíðum 439-45 er mjög gagnleg til að finna biblíuleg rök fyrir trú okkar. Bjóðið áheyrendum að taka þátt í að finna svör við eftirfarandi spurningum með því að nota atriðisorðaskrána: Hvert er viðhorf kristinna manna til þjóðsöngva og fánahyllinga? (Anthems og flags.) Hvers vegna leyfir Guð hörmungar? (Disasters) Hvernig geturðu útskýrt afstöðu Biblíunnar til hjónaskilnaða? (Divorce) Hvers vegna þurfa systur stundum að bera höfuðfat og hvenær? (Head covering) Hver er uppruni mæðradagsins? (Mother’s Day) Hvernig vitum við að 144.000 er bókstafleg tala? Hvað þýðir dæmisagan um ríka manninn og Lasarus? (Rich man and Lazarus) Hvetjið alla til að nota Rökræðubókina í boðunarstarfinu.
Söngur 28 og lokabæn.
Vikan sem hefst 6. maí
Söngur 141
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Ræðið greinina „Haltu áfram að hafa gagn af Varðturninum og Vaknið!“
10 mín: Búum okkur undir sumarið. Ræða með þátttöku áheyrenda. Teljið upp það sem er venjulega á dagskrá yfir sumarið: Að vera viðstaddur allt landsmótið, vera aðstoðarbrautryðjandi einn eða tvo mánuði, dytta að húsinu eða íbúðinni, og njóta þess að slappa af eða fara í ferðalag. Biðjið nokkra um að segja frá áformum sínum fyrir sumarið og hvernig þeir ætla ekki að vanrækja fjölskyldunám, safnaðarsamkomur og boðunarstarf jafnvel þótt þeir séu á ferðalagi. Gerið grein fyrir hvað gert verður til að starfa vel á svæðum, þar sem sjaldan er starfað, ef söfnuðurinn er með einhver slík svæði. Minnið alla á að sjá til þess að bóknámsumsjónarmaðurinn fái starfsskýrsluna, hvort sem þeir eru heima eða að heiman.
25 mín: „Andlega sterkar fjölskyldur — hvernig?“e Endursegið frásögurnar í Varðturninum á ensku frá 15. febrúar 1999, bls. 10-12 að yfirferð lokinni.
Söngur 17 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
c Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
d Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
e Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.