Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.02 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2002
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 11. febrúar
  • Vikan sem hefst 18. febrúar
  • Vikan sem hefst 25. febrúar
  • Vikan sem hefst 4. mars
Ríkisþjónusta okkar – 2002
km 2.02 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 11. febrúar

Söngur 6

9 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að lesa eða fara yfir 1. Mósebók 6:1 til 9:19 og horfa á myndbandið Noah — He Walked With God (Nói — hann gekk með Guði) áður en fjallað verður um það á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 25. febrúar.

20 mín: „‚Flytjum Guðs orð óskorað.‘“ a (Greinar 1-13) Í höndum umsjónarmanns í forsæti. Líflegar umræður um markmið okkar í mars og á vormánuðum. Allir ættu að nota dagatalið í viðaukanum og útbúa heppilega stundaskrá til að geta tekið eins mikinn þátt og mögulegt er í boðunarstarfinu í mars. Hvetjið alla sem hafa tök á til að gerast aðstoðarbrautryðjendur. Biðjið þá sem voru aðstoðarbrautryðjendur í fyrravor að greina frá því hvaða blessun féll þeim í skaut, þegar rætt er um gr. 7-8. Tilkynnið að hægt sé að verða sér úti um umsóknareyðublað fyrir aðstoðarbrautryðjandastarf eftir samkomuna.

16 mín: „Hvers vegna eigum við að halda áfram að boða trúna?“ b Ljúkið á viðtali við einn eða tvo boðbera sem hafa boðað trúna um langt árabil. Biðjið þá að greina frá því hvers vegna þeir hafa haldið því staðfastlega áfram og hvernig það hefur gagnast þeim.

Söngur 223 og lokabæn.

Vikan sem hefst 18. febrúar

Söngur 95

8 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

12 mín: „Hamingjusamasta fólk á jörðinni.“ c Fjallið stuttlega um efnið „Skref til hamingju“ á bls. 6 í Varðturninum 1. október 1997.

25 mín: „‚Flytjum Guðs orð óskorað.‘“ d (Greinar 14-23) Í höndum starfshirðis. Fjallið um hvað gert verður í mars til að auka boðunarstarfið. Greinið frá öllum samansöfnunum fyrir boðunarstarfið sem ráðgert er að halda í mánuðinum. Bendið á að reynt verði að hjálpa óvirkum og aðstoða börn og biblíunemendur við að verða hæf til að gerast óskírðir boðberar. Lesið upp nöfn þeirra sem verða aðstoðarbrautryðjendur í mars og hvetjið fleiri til að hugleiða í bæn hvort þeir geti slegist í hópinn.

Söngur 143 og lokabæn.

Vikan sem hefst 25. febrúar

Söngur 174

15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Sviðsetjið tvær útfærslur á „Kynningu fyrir boðunarstarfið“ á bls. 8 og tengið tilboði marsmánaðar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir febrúar.

15 mín: „Áhrifarík myndbönd.“ Umræður við áheyrendur. Til þessa hefur verið fjallað um átta myndbönd á dagskrá þjónustusamkomunnar. Ræðið stuttlega um dæmin í greininni og spyrjið síðan áheyrendur hvort þeim hafi tekist að sýna öðrum myndböndin.

15 mín: „Allir geta lært af myndbandinu um Nóa.“ Byrjið strax að ræða við áheyrendur um myndbandið Noah — He Walked With God. Notið eingöngu spurningarnar í rammagreininni á bls. 3. Í apríl verður fjallað um myndbandið Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?).

Söngur 215 og lokabæn.

Vikan sem hefst 4. mars

Söngur 207

5 mín: Staðbundnar tilkynningar.

12 mín: „Bréf frá hinu stjórnandi ráði.“ Ræða með einhverri þáttöku áheyrenda.

15 mín: Notið Þekkingarbókina til að koma af stað námskeiðum. Í mars verður gert átak í biblíunámsstarfinu. Segið stuttlega frásöguna í Ríkisþjónustu okkar í ágúst 1998, bls. 4, gr. 8. Ef einhver hefur nýlega stofnað námskeið með hjálp Þekkingarbókarinnar má biðja hann að sviðsetja hvernig hann fór að. Minnið alla á greinina „Kynningartillögur fyrir Þekkingarbókina“ í viðauka Ríkisþjónustu okkar í janúar 2002. Sviðsetjið eina af tillögunum á bls. 6 í viðaukanum undir millifyrirsögninni „Að bjóða biblíunámskeið beint.“

13 mín: „Hvað geturðu sagt um blöðin?“ Spyrjið boðbera hvernig þessar kynningar í Ríkisþjónustu okkar hafa auðveldað þeim að tengja ritin við atburði þessa erfiðu tíma. Hvernig hafa þeir getað hughreyst fólk og hjálpað því að finna svör í Biblíunni við þungbærum spurningum? Notið tillögurnar á bls. 8 og sviðsetjið tvær stuttar blaðakynningar, aðra úr Varðturninum 1. mars og hina úr Vaknið! janúar til mars.

Söngur 49 og lokabæn.

[Neðanmáls]

a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

c Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

d Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila