Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 10. desember
Söngur 205
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að horfa á myndbandið To the Ends of the Earth (Til endimarka jarðar) áður en rætt verður um efni þess á þjónustusamkomu í vikunni sem hefst 24. desember.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: „Blessun fylgir því að meta kærleika Jehóva — 2. hluti.“a Biðjið áheyrendur um frásögur þegar farið er yfir gr. 2-6. Þetta mega vera frásögur af óformlegu boðunarstarfi, bréfaskriftum og símaboðun. Látið sviðsetja eina eða tvær frásögur.
Söngur 222 og lokabæn.
Vikan sem hefst 17. desember
Söngur 211
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Greinið frá ráðstöfunum safnaðarins fyrir boðunarstarfið yfir helgidagana.
22 mín: „Farðu rétt með orð Guðs.“b Sviðsetjið kynninguna í gr. 4 á raunhæfan hátt. Sviðsetjið einnig áhrifaríka kynningu sem hefur reynst vel við að uppörva eða hugga fólk vegna ástands heimsmála. Segja má stutta frásögu. Spyrjið áheyrendur hvers vegna þeir telji vænlegra til árangurs að nota Biblíuna í kynningarorðum sínum.
13 mín: ‚Þið hafið ykkar eigin biblíu.‘ Umræður við áheyrendur byggðar á Reasoning from the Scriptures, bls. 279-80. Stundum slá húsráðendur því fram að Vottar Jehóva noti ‚aðra‘ biblíu en þeir. Til eru fjölmargar biblíuþýðingar á ýmsum málum og vottarnir nota gjarnan þær sem eru fyrir hendi á máli heimamanna. Hér á landi notum við fyrst og fremst íslensku biblíuna frá 1981. Biðjið nokkra boðbera fyrir fram um að endursegja og staðfæra tillögurnar á bls. 279-80 og útskýra jafnframt hvers vegna við vitnum stundum í biblíuþýðinguna New World Translation í ritum okkar.
Söngur 225 og lokabæn.
Vikan sem hefst 24. desember
Söngur 218
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnist á ritatilboðið fyrir janúar. Sviðsetjið kynninguna neðst á bls. 8 og tengið við tilboð mánaðarins.
10 mín: „Guðveldisskólinn árið 2002.“ Ræða skólahirðis. Hvetjið alla til að gera verkefnum sínum góð skil.
25 mín: „Að bera vitni — til endimarka jarðar.“ Umræður við áheyrendur. Hvetjið alla til að íhuga alvarlega hvernig þeir geti náð til fleira fólks með fagnaðarerindið á safnaðarsvæðinu eða þar sem þörfin er meiri. Vísið í Ríkisþjónustu okkar í júlí 2001, bls. 4. Í febrúar verður myndbandið Noah — He Walked With God (Nói — hann gekk með Guði) tekið fyrir.
Söngur 24 og lokabæn.
Vikan sem hefst 31. desember
Söngur 140
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir desember. Ef söfnuðurinn breytir um samkomutíma um áramótin skulið þið hvetja alla til að sækja samkomurnar reglulega á nýja tímanum. Gætið þess að láta alla áhugasama og óvirka vita af breytingunum.
15 mín: Veitið öldungum þá virðingu sem þeir verðskulda. Tveir eða þrír safnaðarþjónar ræða efni Varðturnsins 1. júlí 1999, bls. 16-18. Þeir minnast á hin fjölmörgu störf sem öldungarnir þurfa að annast, meðal annars vinnu, fjölskylduábyrgð og samkomuverkefni. Ræðið hvað allir geti gert til að uppörva þá, létta undir með þeim og fylgja handleiðslu þeirra. Þjónarnir eru sammála um að öldungarnir vinni verðmætt starf og eigi „sérstaka virðingu“ skilið. — 1. Þess. 5:12, 13.
20 mín: Notaðu líf þitt skynsamlega. Fjölskylda ræðir saman efnið í Varðturninum á ensku 15. ágúst 1998, bls. 8-9. Faðirinn vill að stefnumið fjölskyldunnar veiti gleði en ekki vonbrigði. Þau fara í sameiningu yfir biblíuheilræðin í greininni sem sýna hvernig fjölskyldan getur tryggt hamingju sína, verið hyggin, sett sér verðug markmið og treyst Jehóva. Þau fjalla um breytingar sem þau geta gert saman.
Söngur 219 og lokabæn.
Vikan sem hefst 7. janúar
Söngur 20
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
20 mín: „Við höfum nýtt hjálpargagn til að hefja biblíunámskeið.“ Umræður við áheyrendur í höndum starfshirðis. Látið salarverði dreifa eintaki af nýja smáritinu Langar þig að vita meira um Biblíuna? Sviðsetjið tvær vel æfðar kynningar úr rammagreininni „Hvað geturðu sagt um blöðin?“ Annar boðberinn getur kynnt Varðturninn 1. janúar og hinn Vaknið! janúar-mars. Í báðum tilfellum lýkur boðberinn á því að rétta húsráðandanum eintak af smáritinu nýja.
15 mín: Ríkissalurinn skoðaður. Ræða öldungs. Minnist á ásigkomulag ríkissalarins. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að þrífa ríkissalinn fyrir minningarhátíðina? Hvaða viðhaldi þarf að sinna fyrir þann tíma? Útskýrið hvað söfnuðurinn getur lagt af mörkum. Leggið áherslu á að tilbeiðslustaður okkar þurfi að endurspegla þá fegurð og reisn sem húsi Jehóva sæmir. — Sálm. 84:2.
Söngur 126 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.