Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 10. september
Söngur 86
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: „Kemur vinnan í veg fyrir að þú prédikir?“a Leggið áherslu á að gæta þurfi jafnvægis í sambandi við vinnu og að láta hagsmuni Guðsríkis ganga fyrir öðru. Biðjið nokkra feður í söfnuðinum að greina frá því hvernig þeim tekst að sjá fjölskyldu sinni farborða án þess að það bitni á andlegum þörfum hennar.
Söngur 124 og lokabæn.
Vikan sem hefst 17. september
Söngur 92
15 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. „Þetta er í Efnisskránni.“ Sýnið hvernig finna megi kynningartillögur fyrir Sköpunarbókina.
15 mín: Hvernig stóðum við okkur á síðasta ári? Ræða starfshirðis. Farið yfir helstu þætti starfsskýrslu safnaðarins fyrir þjónustuárið 2001. Hrósið öllum fyrir það sem vel var gert. Beinið athyglinni að því hvernig söfnuðurinn hefur staðið sig í samkomusókn, reglulegu boðunarstarfi og biblíunámsstarfinu. Bendið á hvar taka megi framförum og setjið raunhæf markmið fyrir komandi þjónustuár.
15 mín: Spurningakassinn. Ræða. Greinið frá samkomum safnaðarins fyrir boðunarstarfið í hverri viku. Bendið á hvernig allir sem sækja þær geta lagt sitt af mörkum til að þær verði gagnlegar. Hvetjið safnaðarmenn til að styðja þessar starfsráðstafanir.
Söngur 129 og lokabæn.
Vikan sem hefst 24. september
Söngur 97
15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Sviðsetjið tvær kynningar úr rammagreininni „Hvað geturðu sagt um blöðin?“
30 mín: Elskið Guð — ekki það sem í heiminum er. (1. Jóh. 2:15-17) Ræða og umræður við áheyrendur um efni síðasta svæðismóts. Hvetjið boðbera til að tjá sig um aðalatriði dagskrárinnar og hvernig þeim og fjölskyldum þeirra hefur tekist að heimfæra þau. (Fela mætti boðberum verkefni fyrir fram.) Fjallið um eftirfarandi dagskrárliði: (1) „Kærleikur til Guðs er drifkraftur þjónustunnar.“ Slíkur kærleikur gerir okkur kleift að sigrast á neikvæðum tilfinningum eins og kjarkleysi, vanmáttarkennd og ótta við menn sem geta verið okkur fjötur um fót í boðunarstarfinu. (2) „Þeir sem elska Jehóva hata hið illa.“ (wE99 1.10. 28-31) Til að eiga samband við Guð þurfum við að hata það sem hann hatar — ekki aðeins það sem er augljóslega illt heldur líka lúmskari myndir þess. (3) „Fylgdu hinni ágætari leið kærleikans.“ (wE92 15.7. 27-30) Í 1. Korintubréfi 13:4-8 kemur fram hvers vegna við þolum ófullkomleika annarra, forðumst sjálfselsku og samkeppnishug, útbreiðum ekki skaðlegt slúður og erum skipulagi Guðs trú. (4) „Hvaða augum líturðu það sem í heiminum er?“ Við megum ekki elska það sem í heiminum er, láta undan fýsn holdsins, blekkjast af fýsn augnanna eða stjórnast af auðæfa-oflæti. (5) „Það er vernd að tilheyra ekki heiminum.“ Síðara Korintubréf 6:14-17 sýnir fram á hvernig vissar skoðanir, siðvenjur og iðkanir geta gert okkur vanþóknanleg Guði. Við verðum að koma auga á tálgryfjur djöfulsins og forðast þær. (6) „Loforð Guðs til þeirra sem elska hann.“ (wE86 15.6. 5-6) Blessun Jehóva gleður okkur og auðgar andlega. — 1. Tím. 6:17-19.
Söngur 133 og lokabæn.
Vikan sem hefst 1. október
Söngur 106
8 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir september.
15 mín: Hvernig get ég bætt mig í skóla? Öldungur og kona hans eða safnaðarþjónn og kona hans ræða við barn sitt á skólaaldri. Þau eru áhyggjufull af því að barnið er að dragast aftur úr í námi. Þau skoða ráðleggingarnar í 18. kafla Spurningar unga fólksins og ræða hvað barnið þurfi að gera til að bæta sig. Foreldrarnir leggja áherslu á gildi góðrar undirstöðumenntunar svo að hægt sé að beita sér að fullu í heilagri þjónustu.
22 mín: „Gerirðu starfi þínu góð skil?“* Farið yfir 1.-3. grein með áheyrendum. Sviðsetjið síðan tvær stuttar blaðakynningar, aðra úr Varðturninum 1. október og hina úr Vaknið! október til desember. Fjallið um 4. grein og sviðsetjið kynningartillöguna úr Þekkingarbókinni.
Söngur 137 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.