Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? Þar sem við á má bjóða bæklingana Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru? og Bók fyrir alla menn. September: Bókin Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Október: Blöðin Varðturninn og Vaknið! Bjóða má fólki á afskekktum stöðum áskrift að blöðunum. Nóvember; Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? eða bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Eigi fólk þessi rit fyrir má bjóða Biblíusögubókina mína.
◼ Umsjónarmaður í forsæti eða einhver sem hann tilnefnir á að endurskoða reikningshald safnaðarins 1. september eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Þegar því er lokið skal tilkynna það söfnuðinum eftir að næsta reikningshaldsskýrsla er lesin upp.
◼ Söfnuðir geta pantað Dagatal votta Jehóva árið 2002 á ritapöntunareyðublaðinu í september. Dagatalið verður fáanlegt á eftirfarandi tungumálum: albönsku, arabísku, armensku, austur-armensku, búlgörsku, dönsku, eistnesku, ensku, finnsku, frönsku, georgísku, grísku, hebresku, hindí, hollensku, indónesísku, ítölsku, japönsku, kínversku, kóresku, króatísku, lettnesku, litháísku, malagasí, norsku, portúgölsku, pólsku, rúmensku, rússnesku, serbnesku, slóvakísku, slóvensku, spænsku, sænsku, tamíl, tékknesku, tyrknesku, úkraínsku og þýsku.
◼ Nægilegt magn eyðublaða fyrir þjónustuárið 2002 verður sent til safnaðanna á næstunni. Vinsamlegast gætið þess að nota eyðublöðin skynsamlega og aðeins í þeim tilgangi sem til er ætlast.
◼ Reglulegir brautryðjendur geta ekki sótt Brautryðjandaskólann fyrr en þeir hafa náð 16 ára aldri. Undantekning er aðeins gerð ef foreldri unglingsins er brautryðjandi og sækir skólann á sama tíma.
◼ Árleg talning allra rita og blaða á lager skal fara fram 31. ágúst 2001 eða eins nálægt þeim degi og hægt er. Þetta er sams konar talning og sú sem bókaumsjónarmaðurinn framkvæmir mánaðarlega, og niðurstöðutölur skal færa á ritatalningareyðublaðið (S-18). Upplýsingar um heildarfjölda blaða á lager má fá hjá blaðaþjónum hlutaðeigandi safnaða. Umsjónarsöfnuðurinn fær send þrjú eintök af ritatalningareyðublaðinu. Vinsamlegast sendið frumritið til Félagsins ekki síðar en 6. september. Haldið eftir afriti fyrir skjalasafnið. Þriðja eintakið má nota sem vinnublað. Ritari umsjónarsafnaðarins á að hafa eftirlit með talningunni og undirrita eyðublaðið ásamt öldungi í forsæti í umsjónarsöfnuðinum.
◼ Sérstaki mótsdagurinn þjónustuárið 2002 verður haldinn sunnudaginn 4. nóvember í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Stef mótsdagsins er ‚Gefið ykkur Guði á vald — standið gegn djöflinum.‘ Dagskráin hefst kl. 9:55 og lýkur kl. 15:50.
◼ Ný myndbönd fáanleg:
Faithful Under Trials — Jehovah’s Witnesses in the Soviet Union (Trúfastir í prófraunum — vottar Jehóva í Sovétríkjunum) (vcut) — rússneska.