Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.01 bls. 5–6
  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 8.01 bls. 5–6

Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Upprifjun, með lokaðar bækur, á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 7. maí til 20. ágúst 2001. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.

[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna við að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ekki alltaf getið blaðsíðu og greinanúmers.]

Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar eru réttar eða rangar:

1. Bænin, sem nefnd er í Nehemía 2: 4, var borin fram í örvæntingu og flýti. [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.10. bls. 30, gr. 8.]

2. Orðið „söfnuður“ er þýðing gríska orðsins ekklesia. Orðið lýsir einhug og gagnkvæmum stuðningi. [wE99 15.5. bls. 25 gr. 4]

3. Þjónar Jehóva forðast siðvenjur tengdar dauðanum sem stinga í stúf við orð Guðs en hafna þó ekki öllum siðvenjum sem tengjast dauðanum. (Jóh. 19:40) [rs bls. 102 gr. 4]

4. Job var á sínum tíma eini þálifandi maðurinn sem var Jehóva trúr. (Job. 1: 8) [Vikulegur biblíulestur; sjá w92 1.9. bls. 31 gr. 3-4.]

5. Að Sál eða Páll skyldi sjá fyrir sér með tjaldgerð sýnir að hann var kominn af lágstéttarfólki. (Post. 18: 2, 3) [wE99 15.5. bls. 30 gr. 2- bls. 31, gr. 1]

6. Þó að Davíð drýgði alvarlegar syndir gat Jehóva sagt að hann ‚væri sér hlýðinn af öllu hjarta‘ af því að hann iðraðist og sýndi góða eiginleika. (1. Kon. 14: 8) [wE99, 15.6. bls. 11 gr. 4]

7. Við ættum að gera allt sem við getum til að efna loforð okkar þó að það sé erfitt þegar á reynir, svo framarlega sem við lofuðum engu óbiblíulegu. (Sálm. 15: 4) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE89 15.9. bls. 28 gr. 5.]

8. Af Sálmi 22:2 má ráða að trú Davíðs hafi bilað um stund undir álagi. [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.5. bls. 31 gr. 19.]

9. Kristinn maður getur ‚fallið‘ í þeim skilningi að vera vonsvikinn og kjarklaus eða vegna lagalegra eða fjárhagslegra erfiðleika, en hann ‚liggur ekki flatur‘ andlega af því að andi Guðs og trúfélagar hans styðja hann. (Sálm. 37: 23, 24) [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.3. bls. 22 gr. 14.]

10. Fyrsti kafli 1. Mósebókar kennir að Guð hafi skapað alla hluti hér á jörð á sex sólarhringum. [rs bls. 126 gr. 1]

Svarið eftirfarandi spurningum:

11. Hvernig „útskýrðu“ Esra og aðstoðarmenn hans lögmálið? (Nehem. 8: 8) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.10. bls. 31 gr. 4.]

12. Af hverju er ‚gleði Jehóva‘ sprottin? (Nehem. 8:10) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.10. bls. 31 gr. 9.]

13. Hvers vegna voru þeir menn blessaðir „sem sjálfviljuglega réðu af að búa í Jerúsalem“? (Nehem. 11: 2) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.10. bls. 31 gr. 12.]

14. Hvers vegna dró Ester það að segja konungi hvað hún hyggðist fyrir? (Est. 5: 6-8) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.11. bls. 31 gr. 18.]

15. Hvaða tveim mikilvægum spurningum er svarað í Jobsbók? [si bls. 95 gr. 1]

16. Af hverju voru ráðleggingar Elífasar letjandi fyrir Job? (Job. 21:34; 22: 2, 3) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE95 15.2. bls. 27 gr. 5-6.]

17. Hvað er sálmur? [si bls. 101 gr. 2]

18. Hvaða ‚fánýt ráð hyggja þjóðirnar á‘ eins og fram kemur í Sálmi 2:1? [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.5. bls. 31 gr. 5.]

19. Hvað má læra um hlutleysi af þjónustu Filippusar meðal Samverja og prédikun hans fyrir eþíópska hirðmanninum? (Post. 8: 6-13, 26-39) [wE99 15.7. bls. 25 gr. 2]

20. Hvernig sýndi Job að hann væri sannfærður um að Guð gæti reist sig upp úr gröfinni þar sem hann áleit sig geta fengið hvíld frá erfiðleikum sínum? (Job. 14: 7, 13-15) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE00 15.5. bls. 27 gr. 7-bls. 28 gr. 1.]

Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:

21. Esterarbók 8:17 segir að fólk hafi ‚gerst Gyðingar‘; á viðlíka hátt hefur „ _________________________ “ ‚annarra sauða‘ tekið afstöðu með hinum _________________________ . (Opinb. 7:9; Jóh. 10:16; Sak. 8:23) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.11. bls. 32 gr. 14.]

22. Þó að Jehóva sé mjög meðvitaður um _________________________ , eins og sjá má af Postulasögunni 1: 7, kemur uppgjörsdagur hans eins og _________________________ þegar menn eiga hans síst von. (2. Pét. 3:10) [wE99 1.6. bls. 5 gr. 2-3]

23. Orðin ‚himinn‘ og ‚jörð‘ eru notuð í _________________________ í 2. Pétursbréfi 3: 7, 10 en ‚jörðin‘ táknar _________________________ eins og sjá má af samhenginu. [rs bls. 114, gr. 2-4]

24. Uppbyggileg samskipti byggjast á trúnaði, trausti og gagnkvæmum skilningi sem myndast þegar litið er á hjónabandið sem _________________________ samband og þegar fólk finnur sig _________________________ að láta það heppnast. [wE99 15.7. bls. 21 gr. 3]

25. Jákvæður hópþrýstingur getur hjálpað okkur að _________________________ siðferðilegum og andlegum kröfum og þjóna Jehóva af _________________________. [wE99 1.8. bls. 24 gr. 3]

Veljið rétta svarið í eftirfarandi fullyrðingum:

26. Að Mordekai skyldi ‚sitja í konungshliði‘ gefur til kynna að hann hafi verið (lífvörður konungs; einn af embættismönnum Ahasverusar konungs; beðið áheyrnar hjá konungi). (Est. 2: 19, 20) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.11. bls. 31 gr. 9.]

27. Job lét í ljós þá trú í Jobsbók 19: 25-27 að hann myndi „líta Guð.“ Það merkir að hann myndi (sjá sýn; fá upprisu til himna; fá skilningsaugu sín opnuð fyrir sannleikanum um Jehóva). [Vikulegur biblíulestur; sjá w95 1.5. bls. 25 gr. 17.]

28. Job er þekktastur fyrir (kærleika; góðvild; þolgæði). (Jak. 5:11) [si bls. 100, gr. 41]

29. Ritun Sálmanna tók um það bil (þrjú hundruð; fimm hundruð; þúsund) ár. [si bls. 101, gr. 4]

30. (Davíð; Asaf; Esra) mun hafa lokið samantekt Sálmanna. [si bls. 102, gr. 6]

Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:

Nehem. 3:5; Sálm. 12:3; 19:8; 2. Tím. 3: 16, 17; Jak. 5: 14-16

31. Við ættum að vera fús til að vinna hörðum höndum og ekki telja það fyrir neðan virðingu okkar að vinna erfiðisvinnu. [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.10. bls. 30 gr. 12, 19.]

32. Kristinn maður, sem hefur framið alvarlega synd, ætti að játa hana fyrir öldungunum. [rs bls. 83, gr. 9]

33. Áður fyrr veitti Guð þjónum sínum viðvaranir, fyrirmæli og spádóma í draumum en núna fræðir hann okkur til hjálpræðis í innblásnu orði sínu. [rs bls. 106, gr. 2]

34. Ef við þráum vináttu Guðs verðum við að vera heiðarleg og hræsnislaus innst inni. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE89 15.9. bls. 26 gr. 7.]

35. Að hlýða lögum Guðs hressir sálina og er til velfarnaðar. [Vikulegur biblíulestur; sjá w00 1.11. bls. 23 gr. 4.]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila