Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 13. ágúst
Söngur 30
13 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að horfa á myndbandið The New World Society in Action (Nýheimssamfélagið að störfum) áður en rætt verður um efni þess á þjónustusamkomu í vikunni sem hefst 27. ágúst. Farið yfir greinina „Ný dagskrá sérstaka mótsdagsins.“ Tilgreinið hvenær sérstaki mótsdagurinn verður. Hvetjið boðbera til að vera viðstadda alla dagskrána og bjóða biblíunemendum sínum og áhugasömum að koma.
17 mín: „Langar þig til að gera meira?“* Komið með tillögur um hvað megi gera meira til að vitna fyrir fólki sem talar ekki íslensku á starfssvæðinu. Ræðið stuttlega um efni Varðturnsins á ensku 15. júní 1997, bls. 26-9.
15 mín: „Haltu afþreyingu innan hóflegra marka.“ Bóknámsstjóri ræðir við hjón eftir bóknámið. Hann minnist vingjarnlega á að hann hafi ekki séð þau upp á síðkastið í boðunarstarfinu eða á helgarsamkomum. Hjónin segjast hafa verið upptekin af ferðalögum og öðrum sumartómstundum. Öldungurinn fer yfir aðalatriði greinarinnar og leiðir þeim fyrir sjónir að andleg hugðarefni eigi alltaf að skipa fyrsta sætið. Þau þakka fyrir þessa góðu áminningu og eru sammála um að forgangsraða hlutunum betur framvegis. — Sjá Varðturninn 1. nóvember 2000, bls. 28-9.
Söngur 68 og lokabæn.
Vikan sem hefst 20. ágúst
Söngur 33
8 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín: „Þú ert á ‚leiksviði.‘“* Nefnið staðbundin dæmi um vinsamleg ummæli fólks um vottana eða starfsemi þeirra. — Sjá Varðturninn á ensku 15. mars 1998, bls. 10, og 15. janúar 1999, bls. 32.
22 mín: „Mannasiðir einkenna guðrækna menn.“ Öldungur flytur fimm mínútna ræðu út frá gr. 1-5 og ræðir síðan við annan öldung og safnaðarþjón um hinar tölugreinarnar. Þeir ræða hvernig forðast megi tillitsleysi sem getur beint athyglinni frá samkomunum og dregið úr gagnsemi þeirra. Þeir benda á að samneyti við trúbræður sé einkar uppörvandi þegar við sýnum að okkur er innilega annt um þá . — Fil. 2:4.
Söngur 72 og lokabæn.
Vikan sem hefst 27. ágúst
Söngur 40
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir ágúst. Komið með eina eða tvær stuttar kynningartillögur fyrir Sköpunarbókina til að nota í boðunarstarfinu í september. — Sjá Ríkisþjónustu okkar í september 1996, bls. 8, og júní 1995, bls. 8.
15 mín: Þjónustuskýrslan fyrir apríl. Ræða og viðtöl í umsjá starfshirðis. Fjallið um þjónustuskýrsluna fyrir apríl, bæði fyrir landið í heild og söfnuðinn. Eigið viðtal við nokkra boðbera sem gátu aukið boðunarstarf sitt í apríl. Biðjið þá að greina frá gleðinni sem þetta veitti þeim og hvað þeir gera til að halda sér uppteknum í þjónustunni. — Sjá viðauka Ríkisþjónustu okkar fyrir mars 2001, gr. 28-30.
20 mín: „Sjáum nýheimssamfélagið að störfum á sjötta áratugnum.“ Umræður við áheyrendur og viðtöl. Farið yfir spurningarnar í rammagreininni og eigið, ef mögulegt er, viðtöl við boðbera sem sáu upphaflegu myndina eða sóttu alþjóðamót á sjötta áratugnum. Látið þá segja frá því sem þeir muna, áhrifunum sem það hafði á þá andlega og hvernig það styrkti þá sannfæringu að þeir tilheyrðu skipulagi Jehóva. Í október verður rætt um myndbandið United by Divine Teaching (Sameinuð með kennslu Guðs).
Söngur 74 og lokabæn.
Vikan sem hefst 3. september
Söngur 80
8 mín: Staðbundnar tilkynningar.
17 mín: „Hve mikilvægur er kristinn félagsskapur?“a Takið með efni undir millifyrirsögninni „Through the Congregation“ (Fyrir atbeina safnaðarins) í Varðturninum á ensku 15. janúar 1996, bls. 22.
20 mín: Ef einhver segir . . . Umræður með sviðsettum kynningum. Þegar húsráðandi slær fram óvæntri fullyrðingu eða varpar fram spurningu ættum við að reyna að svara henni í stað þess að skipta um umræðuefni eða slíta samtalinu. Bókin Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókin) getur oft orðið að liði. Bendið á nokkur algeng ummæli og fáið boðbera til að sviðsetja andsvör Rökræðubókarinnar. Dæmi: ‚Ég trúi ekki á Guð.‘ (bls. 150-1) ‚Reynið þið ekki að bæta samfélagið?‘ (bls. 207-8) ‚Það skiptir ekki máli hvaða kirkjudeild maður tilheyrir.‘ (bls. 332) Hvetjið alla til að notfæra sér Rökræðubókina þegar óvæntar aðstæður koma upp í boðunarstarfinu.
Söngur 121 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.