Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 11. júní
Söngur 178
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið alla til að horfa á myndbandið Staðfesta votta Jehóva í ofsóknum nasista áður en rætt verður um efni þess á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 25. júní.
15 mín: „Haltu áfram að ‚gera það sem gott er.‘“ Hvetjandi biblíuræða öldungs.
20 mín: „Náðu til hjarta nemandans.“* Komið með tillögur um hvernig megi hjálpa nýjum að glæða með sér trú og kærleika til Jehóva og Jesú. Notið meginatriðin í Varðturninum 1. september 1999, bls. 13, gr. 18-20.
Söngur 184 og lokabæn.
Vikan sem hefst 18. júní
Söngur 194
5 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrsl- an.
10 mín: Viðbrögð við samræðutálmum. Umræður við áheyrendur. Farið yfir liðinn „Athugasemd“ í Biblíusamræðubæklingnum á bls. 7-8. Veljið nokkrar algengar mótbárur á bls. 8-12. Biðjið áheyrendur að segja frá því hvaða andsvör hafa reynst þeim vel og hvers vegna.
30 mín: „Geturðu boðið þig fram?“ Hvetjandi ræða með þátttöku áheyrenda. Spyrjið spurninga við gr. 13 og 16-22. Hvetjið foreldra til að hjálpa börnunum að leggja Betelstarf fyrir sig. Hvetjið fjölskyldur til að fara yfir efni viðaukans í fjölskyldunáminu.
Söngur 197 og lokabæn.
Vikan sem hefst 25. júní
Söngur 2
15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir ritatilboðið í júlí og ágúst. Sviðsetjið vel æfða kynningu á tveim bæklingum í boðunarstarfinu. Kynningartillögur er að finna á baksíðu Ríkisþjónustu okkar í júlí og ágúst 1995 til 1998.
30 mín: „Í trúnni stend ég staðfastur.“ Umræður við áheyrendur um Staðfestumyndbandið. Notið spurningarnar í gr. 2 og farið síðan yfir gr. 3-4. Ljúkið á frásögunni í Vaknið! á ensku 22. nóvember 1999, bls. 31. Í ágúst verður myndbandið The New World Society in Action (Nýheimssamfélagið að störfum) tekið fyrir.
Söngur 29 og lokabæn.
Vikan sem hefst 2. júlí
Söngur 5
13 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir júní. Farið yfir rammagreinina „Vantar þig Árbækur í bókasafnið?“ Segið stuttar frásögur úr Árbókunum 1993 og 1995 til 2000 til að benda á gildi Árbókanna. Hvetjið alla, sem eiga ekki þessar Árbækur í bókasafni sínu, til að panta þær meðan birgðir endast.
15 mín: Unglingar — veljið ævistarfið viturlega. Þetta er fyrsti dagskrárliðurinn af þrem á þjónustusamkomunni um biblíulegar meginreglur sem snerta viðbótarmenntun. Sumir kristnir unglingar hafa lagt út í framhaldsnám en beðið tjón af því andlega. Í þessum dagskrárlið ræða foreldrar við unglingsson sinn eða dóttur sem þarf að taka mikilvæga ákvörðun um framtíðarmarkmið sín. Sumir unglingar sækjast eftir ríkidæmi, frama eða lífsþægindum en fjölskyldan rannsakar hverju Biblían mælir með. (Sjá Spurningar unga fólksins, bls. 174-5; Varðturninn, 1. október 1997, bls. 16, og 1. október 1999, bls. 27-8, gr. 1-3 og 5-6.) Unglingurinn tekur undir að viturlegt sé að velja sér ævistarf sem gerir honum kleift að ná guðræðislegum markmiðum og efla hag Guðsríkis.
17 mín: „Reyndu að finna heyrnarlausa á starfssvæði safnaðarins.“a Minnist á hve margir heyrnarlausir séu á starfssvæðinu ef upplýsingar liggja fyrir. Rifjið upp efnið undir millifyrirsögninni „Að finna fólk sem talar annað tungumál“ í bréfi til allra safnaða á Íslandi, dagsett 1. mars 1999. Lesið frásöguna í Ríkisþjónustu okkar í febrúar 1998, bls. 3, gr. 7.
Söngur 32 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.